Viðskiptaráð Íslands

Athugasemdir Viðskiptaráðs við fyrirhugaðar skattabreytingar

Viðskiptaráð hefur fylgst náið með aðgerðum stjórnvalda á sviði ríkisfjármála á undanförnum vikum og mánuðum, sem margar hverjar eru afar misráðnar. Bæði fjárlagafrumvarp næsta árs og nýleg frumvörp á sviði skattlagningar bera með sér ríka niðurskurðarfælni af hálfu stjórnvalda – á tímum þegar lítið svigrúm er til slíkra viðhorfa. 

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn um skattafrumvarp ríkisstjórnarinnar ásamt því að mæta fyrir efnahags- og skattanefnd Alþingis. VÍ gagnrýnir vinnubrögð Alþingis, en mikill skortur hefur verið á samráði við hagsmunaaðila. Einnig er fyrirætlun ríkisstjórnarinnar um að keyra frumvarpið í gegn á þeim litla tíma sem er til áramóta gangrýnisverð. Í dag eru einungis níu virkir dagar eftir af árinu.

Í aðgerðum sínum taka stjórnvöld ekki tillit til þess að veruleg aðlögun hefur þegar átt sér stað hjá heimilum og fyrirtækjum landsins. Þetta sést best á umtalsverðum samdrætti í einkaneyslu, meira en 10 þúsund töpuðum störfum, hruni í fjárfestingu einkaaðila, fjöldagjaldþrotum fyrirtækja og lækkandi launum á almennum vinnumarkaði. Um leið og þessum hópi er ætlað að bera auknar byrðar þá stefnir ríkið eingöngu að því að taka lítil skref í átt til niðurskurðar og aðhalds, þrátt fyrir verulega þenslu í útgjöldum þess undanfarin ár.

Breytingar á skattkerfinu eru ekki líklegar til að heimta tekjur af skilvirkni og munum við því standa uppi í verri stöðu en ella, þar sem tekjurnar sem vænst var eftir munu ekki skila sér í ríkissjóð.

Hér má nálgast umfjöllun VÍ um frumvarpið.

Tengt efni

Af talnakúnstum og háum sköttum

Áramótaumfjöllun um skattahækkanir fer nú fram fjórða árið í röð. Að vanda kveinka forsvarsmenn skattastefnu stjórnvalda sér undan henni. Í grein í …
21. janúar 2012

Allir eiga að borga sína skatta

Viðskiptaráð hefur í áraraðir talað fyrir skattkerfi sem styður við verðmætasköpun fyrirtækja. Málflutningur ráðsins byggir á þeirri forsendu að …
15. apríl 2016

Skaðlegar skattaáherslur og einkennileg viðbrögð yfirvalda

Nú eru rétt tæpir tveir mánuðir frá því fjárlagafrumvarp næsta árs var lagt fram á Alþingi. Fáum kom á óvart að þar er gert ráð fyrir stórtækum …
4. desember 2009

Nýjar tillögur um þunna eiginfjármögnun of íþyngjandi

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis vegna breytingartillagna við frumvarp til laga um aðgerðir stjórnvalda …
9. september 2016

Tímabær umræða um skattkerfið

Viðskiptaráð fagnar því frumkvæði sem nýjar tillögur verkefnisstjórnar Samráðsvettvangsins um breytingar og umbætur á skattkerfinu fela í sér. …
8. september 2016