Viðskiptaráð Íslands

The Icelandic Economy - ný útgáfa


Hin árlega skýrsla „The Icelandic Economy: Current State, Recent Developments and Future Outlook“ er nú komin út. Skýrslan er einstakt og yfirgripsmikið rit á ensku um íslenskt efnahagslíf. Í henni er fjallað um efnahagslegt ástand á Íslandi, nýlega þróun í stjórnmálum, viðskiptum og efnahagslífi ásamt horfum til framtíðar.

Smelltu hér til að lesa skýrsluna

Umfjöllunarefni skýrslunnar er m.a. eftirfarandi:

  • Þróun helstu hagstærða og samhengi þeirra við önnur ríki
  • Utanríkisviðskipti og erlend staða þjóðarbúsins
  • Þróun helstu útflutningsgreina
  • Nýjustu tölur um framleiðni á Íslandi
  • Launaþróun og komandi kjaraviðræður
  • Einkenni og þróun fjármálamarkaðar
  • Peningastefna
  • Áherslur nýrrar ríkisstjórnar
  • Mögulegar innviðafjárfestingar
  • Vaxtarmöguleikar til framtíðar

Íslenskt efnahagslíf hefur gengið í gegnum miklar breytingar á síðustu 10 árum. Á sama tíma hefur upplýsingagjöf til erlendra aðila um þróun efnahagsmála á Íslandi oft verið af skornum skammti. Þess vegna hefur Viðskiptaráð frá haustinu 2008, gefið reglulega út skýrslu á ensku um stöðu efnahagsmála hérlendis. Skýrslan er send til erlendra tengiliða í fyrirtækjum, alþjóðastofnunum, systursamtökum Viðskiptaráðs og hjá hinu opinbera víðs vegar um heiminn.

Smelltu hér til að lesa skýrsluna

Glærukynning er einnig gefin út samhliða skýrslunni en í henni má finna myndir úr skýrslunni á aðgengilegu formi.

Smelltu hér til að lesa kynninguna

Viðskiptaráð býður upp á kynningar á skýrslunni og prentuð eintök til sölu (í takmörkuðu upplagi). Hafa má samband við hagfræðing ráðsins, Konráð S. Guðjónsson, á netfangið konrad@vi.is fyrir nánari upplýsingar.

Tengt efni

The Icelandic Economy – 4F 2023

Viðskiptaráð Íslands hefur birt nýja ársfjórðungslega útgáfu af The Icelandic Economy. Skýrslan er á ensku og fjallar um íslenskt efnahagslíf í víðu …
2. nóvember 2023

The Icelandic Economy 3F 2023

Ársfjórðungslega útgáfa Viðskiptaráðs um íslenskt efnahagslíf í víðu samhengi
21. ágúst 2023

The Icelandic Economy

Ný útgáfa skýrslunnar „The Icelandic Economy: Current State, Recent Developments and Future Outlook“ hefur nú verið gefin út. Í henni er fjallað um …

Ný útgáfa hagskýrslunnar „The Icelandic Economy 2017"

Ný útgáfa skýrslunnar „The Icelandic Economy: Current State, Recent Developments and Future Outlook“ hefur nú verið gefin út. Í henni er fjallað um …

The Icelandic Economy 2016

Ný útgáfa skýrslunnar „The Icelandic Economy: Current State, Recent Developments and Future Outlook“ hefur nú verið gefin út. Í henni er fjallað um …

The Icelandic Economy: kynning

Viðskiptaráð hefur gefið út glærukynningu um efni skýrslunnar „The Icelandic Economy: Current State, Recent Developments and Future Outlook“. Í henni …
15. júlí 2015