Viðskiptaráð styður að skylda Hagstofunnar til að starfrækja sjálfstæða rannsóknareiningu verði felld brott. Fækkun lögbundinna verkefna eigi þó að skila sér í hagræðingu og lægri útgjöldum en ekki einungis í skýrari verkaskiptingu.

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð. Með frumvarpinu er lagt til að skylda Hagstofunnar til starfrækslu sjálfstæðrar rannsóknareiningar verði felld brott úr lögum.
Viðskiptaráð fagnar framangreindum áformum. Þjóðhagsspá Hagstofu Íslands hefur um árabil verið lögð til grundvallar áætlunum í opinberum fjármálum en nýlega ákvað fjármála- og efnahagsráðherra að þær skuli framvegis byggja á þjóðhagsspá Seðlabanka Íslands. Við þá breytingu hafa forsendur fyrir starfrækslu sérstakrar rannsóknareiningar Hagstofunnar að þessu leyti breyst verulega. Breytingin dregur úr tvíverknaði innan hins opinbera og stuðlar jafnframt að samræmdari forsendum hagstjórnar með því að peningastefna og fjármálastefna styðjist við sömu þjóðhagsspá.
Viðskiptaráð gerir aftur á móti athugasemd við að ekki sé gert ráð fyrir að breytingin feli í sér hagræðingu í starfsemi Hagstofunnar. Samkvæmt drögunum er í stað þess lagt upp með að svigrúmið sem skapast verði nýtt til að styrkja aðra kjarnastarfsemi stofnunarinnar. Með brotthvarfi þessarar sjálfstæðu rannsóknareiningar fækkar lögbundnum verkefnum stofnunarinnar og ætti breytingin því, að öðru óbreyttu, að fela í sér tækifæri til hagræðingar í starfsemi Hagstofunnar og skapa svigrúm til lægri útgjalda. Meginreglan ætti að vera sú að hagræðing sem hlýst af fækkun verkefna skili sér til ríkissjóðs, nema sérstök og knýjandi rök standi til annars.
Viðskiptaráð styður fyrirhugaða breytingu en hvetur stjórnvöld til að tryggja að henni fylgi hagræðing í starfsemi Hagstofunnar. Mikilvægt er að breytingar sem þessar, sem fela í sér einföldun á verkaskiptingu og brottfall lögbundinna verkefna hins opinbera, skili sér ekki aðeins í skýrari verkaskiptingu heldur einnig í bættri nýtingu opinbers fjár.