Viðskiptaráð styður frumvarp um að skylda Hagstofunnar til að starfrækja sjálfstæða rannsóknareiningu verði felld brott. Ráðið fagnar því að í greinargerð sé tekið undir að fækkun lögbundinna verkefna eigi að skapa tækifæri til hagræðingar en hvetur stjórnvöld til að meta þá hagræðingu áður en svigrúminu er ráðstafað til annarra verkefna.

Viðskiptaráð hefur skilað umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð. Með frumvarpinu er lagt til að skylda Hagstofunnar til starfrækslu sjálfstæðrar rannsóknareiningar verði felld brott úr lögum.
Viðskiptaráð styður frumvarpið. Þjóðhagsspá Hagstofu Íslands hefur um árabil verið lögð til grundvallar áætlunum í opinberum fjármálum en nýlega ákvað fjármála- og efnahagsráðherra að þær skyldu framvegis byggja á þjóðhagsspá Seðlabanka Íslands. Við þá breytingu hafa forsendur fyrir starfrækslu sérstakrar rannsóknareiningar Hagstofunnar að þessu leyti breyst verulega. Breytingin dregur úr tvíverknaði innan hins opinbera og stuðlar jafnframt að samræmdari forsendum hagstjórnar með því að peningastefna og fjármálastefna styðjist við sömu þjóðhagsspá.
Viðskiptaráð skilaði umsögn um frumvarpsdrögin á samráðsstigi og gerði þar athugasemd við að ekki væri gert ráð fyrir að breytingin leiddi til hagræðingar í starfsemi Hagstofunnar. Ráðið fagnar því að í greinargerð frumvarpsins sé tekið undir þau almennu sjónarmið að fækkun lögbundinna verkefna ríkisstofnana eigi að skapa tækifæri til hagræðingar.
Í greinargerðinni er vísað til tillagna hagtalnanefndar um nauðsynlegar umbætur á starfsemi Hagstofunnar og þess að starfsfólk rannsóknareiningarinnar geti nýst við önnur verkefni stofnunarinnar. Þótt mikilvægt sé að tryggja gæði opinberra hagtalna breytir það ekki þeirri staðreynd að með frumvarpinu er lögbundið verkefni fellt brott. Slík breyting ætti að kalla á mat á mögulegri hagræðingu áður en ákveðið er að ráðstafa því svigrúmi sem skapast til annarra verkefna.
Telji stjórnvöld þörf á að efla tiltekna þætti starfsemi Hagstofunnar ætti að leggja sjálfstætt mat á þá þörf og kostnaðinn sem henni fylgir, fremur en að ganga út frá því að fjármunir sem losna við brottfall verkefna haldist sjálfkrafa innan stofnunarinnar. Allt að einu ætti að taka slíkt fram í greinargerð. Að öðrum kosti er hætt við að einföldun á verkefnum hins opinbera skili sér ekki í lægri útgjöldum ríkissjóðs.
Viðskiptaráð ítrekar því stuðning sinn við frumvarpið en hvetur stjórnvöld til að meta þau hagræðingartækifæri sem breytingin skapar. Þannig verði tryggt að einföldun á verkaskiptingu hins opinbera leiði jafnframt til bættrar nýtingar opinbers fjár.