Viðskiptaráð styður markmið frumvarpsins um að sameina þrjár stofnanir í eina til að auka skilvirkni og bregðast við athugasemdum Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) um skort á samræmingu í matvælaeftirliti.

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar frumvarp um Stofnun atvinnuveganna. Með frumvarpinu er lagt til að sett verði á fót ný stofnun á sviði matvælaframleiðslu og fiskveiða sem á m.a. að tryggja skilvirkt, árangursríkt og óhlutdrægt opinbert eftirlit með matvælum. Viðskiptaráð skilaði umsögn um málið á fyrri stigum og vísar til hennar eftir því sem við á.
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur í formlegu áminningarbréfi bent á að fyrirkomulag matvælaeftirlits á Íslandi standist ekki kröfur EES-samningsins. Frumvarpinu er meðal annars ætlað að bregðast við ábendingu ESA um að núverandi kerfi tryggi ekki skilvirka samræmingu milli opinberra eftirlitsaðila og að úrræði skorti fyrir miðlægar stofnanir til að koma á samræmdu eftirlitskerfi.
Viðskiptaráð fagnar markmiðum frumvarpsdraganna um aukna skilvirkni með sameiningu þriggja stofnana í eina. Viðfangsefni stofnananna eru um margt eðlislík og tækifæri til samþættingar og samstarfs því fjölmörg. Ber þar helst að nefna tækifæri til heildstæðrar nálgunar á sviði leyfisveitinga og eftirlits með matvælaframleiðslu og fiskveiðum, en sameiningin skapar kjöraðstæður til að samræma verklag og ferla í því tilliti. Sú staðreynd að starfsstöðvar stofnananna eru reknar á svipuðum stöðum á landinu býður jafnframt upp á augljós samlegðartækifæri.
Sem fyrr ræður útfærsla sameininga stofnana þó úrslitum um það hvort markmið þeirra náist. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að fjárhagsáhrif séu metin jákvæð vegna þess hagræðis sem af sameiningunni hlýst. Þrátt fyrir það er gert ráð fyrir auknum útgjöldum og stærri starfsstöðvum og að það fjármagn sem hlýst af hagræðingu verði m.a. nýtt til að efla stofnunina, s.s. í þróunar- og kjarnaverkefnum. Að mati Viðskiptaráðs ætti sameiningin að skila verulegu rekstrarhagræði, m.a. í starfsmannahaldi, húsnæðiskostnaði og samþættingu verkefna. Því eru vonbrigði að ráðgert sé að nýta það svigrúm sem skapast í kjölfar sameiningarinnar til að auka umsvif stofnunarinnar, og þar með útvíkkun framkvæmdavaldsins, fremur en að ná fram raunverulegri hagræðingu.
Viðskiptaráð gerir athugasemd við ákvæði til bráðabirgða sem kveður á um frávik frá auglýsingaskyldu samkvæmt starfsmannalögum og veitir tilteknum hópum starfsfólks forgang til starfa hjá hinni nýju stofnun. Með ákvæðinu er í reynd vikið frá meginreglum um gagnsæi og jafnræði við ráðningar í opinber störf, þar sem ekki er gert ráð fyrir opinni auglýsingu starfa heldur einungis umsóknarferli meðal afmarkaðs hóps. Felur fyrirkomulagið í sér takmörkun á samkeppni um störf og dregur úr trausti til ráðningarferlisins. Að mati ráðsins væri æskilegast að laus störf hjá hinni nýju stofnun yrðu auglýst opinberlega og almenningi þannig gefinn kostur á að sækja um. Verði hins vegar vikið frá meginreglu um auglýsingaskyldu er mikilvægt að tryggja að beiting forgangsréttar byggist á skýrum og gagnsæjum hæfisskilyrðum og að málsmeðferð við val á umsækjendum sé í samræmi við meginreglur stjórnsýsluréttar.
Þá hvetur ráðið til þess að heimild 5. gr. frumvarpsins til útvistunar afmarkaðra verkefna og framkvæmdar eftirlits verði nýtt sem frekast er unnt. Stjórnsýsluþáttur eftirlitsins yrði þá áfram í höndum ríkisstofnunarinnar, en faggiltir skoðunaraðilar myndu sjá um framkvæmd eftirlitsins. Þannig mætti skapa forsendur til að þróa eftirlitsaðferðir með þeim hætti að óhagræði eftirlitsskyldra aðila sé lágmarkað án þess að dregið sé úr kröfum um öryggi og vernd. Þetta fyrirkomulag myndi jafnframt gefa einkaaðilum tækifæri til að setja á fót eigin rekstur og keppa sín á milli, sem myndi tryggja aukna sérhæfingu og hagkvæma framkvæmd eftirlitsins.
Ávinningur þess að fela faggildum aðilum framkvæmd eftirlits getur verið mikill. Dæmi um slíkt er öryggiseftirlit með bifreiðum sem var til ársins 1989 aðeins í höndum Bifreiðaeftirlits ríkisins. Árið 1995 var framkvæmd eftirlitsins gefin frjáls og í kjölfarið hófu einkareknar skoðunarstofur að sinna eftirlitinu. Stjórnsýsluþáttur eftirlitsins var áfram á vegum opinberrar stofnunar, sem í dag er Samgöngustofa. Í dag eru fjórar starfandi einkareknar faggiltar skoðunarstofur sem sinna eftirliti með öryggi bifreiða um allt land á farsælan hátt.
Að framangreindu virtu hvetur Viðskiptaráð til þess að frumvarpið nái fram að ganga og að framkvæmd eftirlitsins verði útvistað til faggiltra skoðunaraðila samhliða þeirri stjórnsýslulegu endurskipulagningu sem frumvarpið gerir ráð fyrir. Loks ítrekar ráðið mikilvægi þess að hagræðing sem hlýst af fyrirhugaðri sameiningu skili sér í formi lægri rekstrarkostnaðar til ríkissjóðs og einfaldari stjórnsýslu en verði ekki nýtt til að þenja út starfsemi stofnunarinnar.