Viðskiptaráð Íslands

Kynningarfundur fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki

Staðsetning: Radisson Blu Saga Hótel

Vinnumálastofnun býður félögum Viðskiptaráðs á kynningarfund mánudaginn 12. nóvember. Stofnunin er þátttakandi í verkefninu GET mobile en markmið þess er m.a. að hvetja fyrirtæki til að taka þátt í mannaskiptaverkefnum á vegum Evrópusambandsins. Verkefnið gerir fyrirtækjum kleift að fá starfsnema inn í fyrirtæki til lengri eða skemmri tíma (1-12 mánuðir) en neminn fær styrk vegna ferðakostnaðar og uppihalds. Það er því ekki um útlagðan kostnað fyrir fyrirtækin að ræða.

Mannaskiptaverkefni eru oft vannýtt auðlind fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki í Evrópu og kannanir sýna að fyrirtækin hika oft við að taka þátt. Hér á Íslandi hafa fá fyrirtæki nýtt sér þetta tækifæri, en dæmi um ávinning af mannaskiptum geta verið aukin nýsköpun og frumkvæði í fyrirtækinu, fjölmenning og tungumálaþekking svo eitthvað sé nefnt.

Um hvað snýst verkefnið?

  • Eitt aðalmarkmið þess er yfirfærsla og þróun leiðbeininga til fyrirtækja sem taka þátt í mannaskiptaverkefnum.
  • Gerð hefur verið handbók fyrir fyrirtækin þar sem má finna gagnlegar upplýsingar um hvernig á að standa að málum.
  • Sett hefur verið upp heimasíða þar sem fyrirtæki geta skráð sig og leitað að samstarfsaðilum.

Vinnumálastofnun býður áhugasömum fulltrúum fyrirtækja að koma á kynningarfund þann 12. nóvember á Radisson Blu Saga Hótel til að fræðast meira um möguleikana í mannaskiptaverkefninu GET mobile. Á fundunum munu fulltrúar Leonardo skrifstofunnar og Vinnumálastofnunar kynna verkefnið, handbókina og heimasíðuna.

Um tvo fundi er að ræða, sá fyrri er kl. 8.30 en sá seinni er kl.11.00. Boðið verður upp á léttan morgunverð fyrir þátttakendur.

Nánari upplýsingar og skráning á fundina er hjá Ásdísi Guðmundsdóttur með tölvupósti eða í síma 515-4860.

Tengt efni

Kynningarfundir - leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja

Viðskiptaráð, í samvinnu við Samtök atvinnulífsins og Nasdaq OMX Ísland, mun standa fyrir kynningarfundum í september á nýjum leiðbeiningum um …
11. september 2009

Margt smátt gerir eitt stórt – málþing um lítil og meðalstór fyrirtæki

Viðskiptaráð Íslands stendur fyrir málþingi um mikilvægi lítilla og meðalstórra fyrirtækja í efnahagslífinu föstudaginn 5. júní næstkomandi.
29. maí 2009

Margt smátt gerir eitt stórt: Málþing um lítil og meðalstór fyrirtæki

Viðskiptaráð Íslands heldur málþing um mikilvægi lítilla og meðalstórra fyrirtækja föstudaginn 5. júní nk. frá 15:00 - 16:30 í Þjóðminjasafni Íslands.
3. júní 2009

Margt smátt gerir eitt stórt: Málþing um lítil og meðalstór fyrirtæki

Viðskiptaráð Íslands heldur málþing um mikilvægi lítilla og meðalstórra fyrirtækja föstudaginn 5. júní nk. frá 15:00 - 16:30 í Þjóðminjasafni Íslands.
3. júní 2009

Erlent vinnuafl - hagur allra

Viðskiptaráð Íslands, í samstarfi við Deloitte, stendur fyrir morgunverðarfundi um erlent vinnuafl þann 28. nóvember kl. 8.30-9.45. Erlendur …
28. nóvember 2006

Íslenski sjávarklasinn - Fiskast best á markmiðum?

Þér er boðið á kynningarfund um íslenska sjávarklasann í höfuðstöðvum Marels að Austurhrauni 9 í Garðabæ, fimmtudaginn 17. nóvember kl. 15.00 til …
17. nóvember 2011