Viðskiptaráð Íslands

Komandi lausnir munu ákvarða samkeppnishæfni íslenska hagkerfisins

Í ræðu sinni á Viðskiptaþingi kom Tómas Már Sigurðsson, formaður Viðskiptaráðs, m.a. inn á það að íslenskt atvinnulíf væri  í viðkvæmri stöðu um þessar mundir. Það hafi gengið illa að blása lífi í atvinnulífið að nýju eftir hrun bankakerfisins, en stöðugt fleiri fyrirtæki verða nú gjaldþrota og fjöldamörg störf hafa tapast. Slíkar aðstæður kalli á spurningar um hvert við stefnum og því er yfirskrift Viðskiptaþings í ár Er framtíð fyrir íslenskt atvinnulíf?

Varðandi skattabreytingar ríkisstjórnarinnar segir hann m.a.: „Í stað þeirra gagngeru breytinga sem nýlega komu til framkvæmda hefðu stjórnvöld átt að setja sér einfalt markmið um að hér yrðu engir nýir skattar lagðir á. Með því væri hinsvegar ekki útilokað að stjórnvöld gætu aukið skatttekjur með skattahækkunum á fyrirliggjandi stofnum.“

Fjármál hins opinbera eru grundvöllur endurreisnar
Jafnframt nefndi hann að hér á Íslandi ríkti mikil tvísýna um framvindu í ríkisfjármálum og greiðslugetu ríkissjóðs í framtíðinni.  Afleiðingin væri algjör óvissa um þróun í skattamálum. Meðal vandamála væri staða peningamála, en hún er í uppnámi. Raunveruleg stefna um hvort taka eigi upp annan gjaldmiðil eða viðhalda krónunni sé ekki til staðar og málefnaleg umræða um framtíðarleiðir eigi sér ekki stað. Á meðan búa fyrirtæki við gjaldeyrishöft, háa vexti og ófyrirsjáanlega verðbólgu.

Einnig kom hann inn á skert aðgengi fyrirtækja að fjármagni, en Tómas sagði: „Alger óvissa ríkir um aðgang fyrirtækja að fjármagni, til skemmri og lengri tíma.“ Stjórnvöld geta haft afgerandi áhrif á hvata fólks, fjármagns og fyrirtækja til að velja Ísland fram yfir önnur lönd með því að bjóða upp á hagfellt skattaumhverfi, halda umsvifum hins opinbera innan skynsamlegra og sjálfbærra marka og efla innviði samfélagsins. Lausnir á skuldavanda og rekstrarhalla ríkissjóðs munu ákvarða samkeppnishæfni íslenska hagkerfisins til framtíðar.

Ræðu Tómasar má nálgast hér.

Tengt efni

Aðgerðir í þágu atvinnulífsins

Framundan er tímabil efnahagslegrar endurreisnar í kjölfar hruns íslenska fjármálakerfisins. Verulega hefur hægst á hjólum atvinnulífs vegna …

Þróun sem verður að snúa við

Frá bankahruni 2008 hafa erfiðir tímar farið í hönd í íslensku efnahagslífi. Viðskiptaráð hefur, eins og margir aðrir, bent á hættu á varanlegum …
4. október 2010

Þróun sem verður að snúa við

Frá bankahruni 2008 hafa erfiðir tímar farið í hönd í íslensku efnahagslífi. Viðskiptaráð hefur, eins og margir aðrir, bent á hættu á varanlegum …
4. október 2010

Vel heppnað Viðskiptaþing 2010

Á miðvikudaginn í síðustu viku sóttu um 400 manns hið árlega Viðskiptaþing viðskiptaráðs sem haldið var undir yfirskriftinni Er framtíð fyrir íslenskt …

Virk samkeppni grundvöllur endurreisnar

Opinber umræða um málefni Sementsverksmiðjunnar á Akranesi og Aalborg Portland ber þess glöggt merki hversu bágborin staða íslensks atvinnulífs er. …
27. ágúst 2009

Viðskiptaþing 2013: Fleiri atvinnugreinar þarf á stall sjávarútvegs

Hreggviður Jónsson formaður Viðskiptaráðs sagði á Viðskiptaþingi, sem nú stendur yfir, okkur Íslendinga standa í svipuðum sporum og árin fyrir …
13. febrúar 2013