Viðskiptaráð Íslands

Getum gert miklu betur! - Ráðstefna um stjórnarhætti fyrirtækja

Þriðjudaginn 25. maí næstkomandi standa Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins, Nasdaq OMX á Íslandi og rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti við Háskóla Íslands fyrir ráðstefnu um stjórnarhætti hérlendis. Ræðumenn á fundinum verða:

  • Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar - Stjórnarhættir fyrirtækja: hvað hefur verið gert?
  • Chris Pierce, forstjóri Global Governance Services Ltd. - Past, present and future corporate governance lessons
  • Benedikt Jóhannesson, ritstjóri Vísbendingar - Hlutverk og starfshættir stjórna - gerum við það sem við eigum að gera?

Með fundinum er ætlunin að minna á mikilvægi góðra stjórnarhátta innan fyrirtækja og stofnana hér á landi, en VÍ, SA og Kauphöllin gáfu á síðasta ári út nýja og endurbætta útgáfu af leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja. Eftir erindi ræðumanna verða pallborðsumræður og þar sem m.a. verður rætt með hvaða hætti hægt er að koma að úrbótum í stjórnarháttum fyrirtækja. Í pallborðinu munu sitja:

  • Vilhjálmur Bjarnason, framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta
  • Þóranna Jónsdóttir, framkvæmdastjóri samskipta- og viðskiptaþróunar Auðar Capital
  • Salvör Nordal, forstöðumaður Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands
  • Dr. Eyþór Ívar Jónsson, forstöðumaður rannsóknarmiðstöðvar um stjórnarhætti við Háskóla Íslands
  • Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands

Ráðstefnan fer fram á Grand Hótel Reykjavík (Gullteigur A), hún hefst klukkan 12 og stendur til 13.45. Verð er krónur 1.500 og er hádegisverður innifalinn.

Frekari upplýsingar um rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti við Háskóla Íslands má nálgast hér.

Tengt efni

Björn og Andri í stjórn og háskólaráð HR

Fyrsti fundur nýrrar stjórnar Háskólans í Reykjavík fór fram föstudaginn 6. …
13. september 2024

Átján fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum hljóta viðurkenningu

Átján fyrirtæki hlutu viðurkenningu fyrir góða stjórnarhætti og um leið …
26. ágúst 2024

Sumaropnun og nýjar verðskrár

Opnunartími skrifstofu Viðskiptaráðs verður styttri frá 22. júlí til 5. ágúst, …
12. júlí 2024