Rannsóknarmiðstöð í stjórnarháttum við Háskóla Íslands efnir til ráðstefnu þriðjudaginn 11. mars kl. 9.30-12.00 um Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum í samvinnu við Viðskiptaráð Íslands og NASDAQ OMX Kauphöll. Tilgangur ráðstefnunnar er að vekja athygli á mikilvægi góðra stjórnarhátta og vinnu íslenskra stjórnarmanna við að efla stjórnarhætti.
Aðalræðumaður ráðstefnunnar er David Beatty sem er prófessor við Rotman School of Management - Háskólinn í Toronto. David er einn af stofnendum og fyrrverandi framkvæmdastjóri The Canadian Coalition for Good Governance sem er stofnun sem hefur verið leiðandi í að efla góða stjórnarhætti í Kanada. Í erindi sínu mun hann fjalla um þróun og breytingar á stjórnarháttum í Kanada.
Dagskrá:
8:30-9:00
Skráning - Hátíðarsalur Háskóla Íslands, Aðalbygging.
9:00-9:30
Opnun: Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra
9:30 - 10:15
Aðalræðumaður: Prófessor David Beatty, Conway Director hjá Clarkson Centre for Business Ethics and Board Effectiveness við Rotman School of Management í Canada
Kaffihlé
10:30 - 11:15
Erindi: Hrund Rudolfsdóttir - Stjórn Stefnis
Erindi: Úlfar Steindórsson - Stjórn Icelandair Group
Erindi: Jón Már Halldórsson - Stjórn Mannvits
Kynning á Fyrirmyndarfyrirtækjum í góðum stjórnarháttum:
Sævar Freyr Þráinsson - stjórnarmaður í Viðskiptaráði Íslands
Viðurkenningar fyrir Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum - Ellefu fyrirtæki hljóta formlega viðukenningu
11:15-11:50
Spurt og svarað um góða stjórnarhætti:
Birna Einarsdóttir - Bankastjóri Íslandsbanka
Hrund Rudolfsdóttir - Stjórn Stefnis
Ingimundur Sigurpálsson - Forstjóri Íslandspósts
Jón Már Halldórsson - Stjórn Mannvits
Úlfar Steindórsson - Stjórn Icelandair Group
11:50-12:00
Lokaorð: Páll Harðarson - Forstjóri NASDAQ OMX Iceland
Léttar veitingar
Fundarstjóri er Dr. Eyþór Ívar Jónsson, forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar í stjórnarháttum