Á árlegu Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs, sem fer fram núna á Reykjavík Hilton Nordica, afhenti Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra styrki námsstyrki Viðskiptaráðs. Af því tilefni sagði Katrín fulla ástæða til bjartsýni á Íslandi og að það væri einkenni Íslendinga að takast á við vanda af bjartsýni. Að hennar mati væri líka gaman að sjá raunverulegan áhuga atvinnulífsins á að efla skólakerfið,
Löng hefð fyrir að Viðskiptaráð veiti styrki úr námssjóðum sínum á Viðskiptaþingi. Félagar Viðskiptaráðs í upplýsingatæknigeira veita einnig námsstyrki úr sérstökum námssjóði ráðsins um upplýsingatækni. Styrkirnir eru veittir námsmönnum í framhaldsnámi erlendis á háskólastigi í greinum sem tengjast atvinnulífinu. Síðarnefndu styrkirnir eru sérstaklega ætlaðir námsmönnum á sviði upplýsingatækni. Styrkirnir voru fimm að þessu sinni og var hver þeirra að fjárhæð kr. 400.000.-.
Hátt í á fjórða tug umsókna bárust þetta árið og hefðu margir umsækjendur verið vel að þessum styrkjum komnir. Það varð þó niðurstaðan að styrkina myndu hljóta í ár þau:
Ólafur, Ingibjörg og Bjarni hlutu styrkinn sem kenndur er við upplýsingatækni.
Viðskiptaráð óskar þeim til hamingju með styrkina og áframhaldandi velfarnaðar í námi og lífi.