Viðskiptaráð Íslands

Fjölmennur fundur Viðskiptaráðs í Lundúnum

Viðskiptaráð Íslands kynnti skýrslu um fjármálastöðugleika á Íslandi í Lundúnum í dag. Fundurinn var annar í röðinni en VÍ stóð fyrir fundi í New York fyrir röskum hálfum mánuði síðan. Fundargestir í Lundúnum voru flestir starfsmenn erlendra fjármálastofnana og greiningaraðilar lánshæfismatsfyrirtækja. Á fundinum fjölluðu prófessorarnir Frederic S. Mishkin og Tryggvi Þór Herbertsson um fjármálastöðugleika á Íslandi og svöruðu spurningum frá fundargestum um íslenskt hagkerfi.

Fram kom í máli Frederic S. Mishkin að hann teldi allan samanburð á Íslandi og nýmarkaðsríkjum afar misráðinn. Hann áréttaði í máli sínu mikilvægi þess að koma áleiðis til greiningaraðila upplýsingum um íslenskt hagkerfi og að hann væri þeirrar skoðunar að mikið af þeirri gagnrýni sem fram hafi komið á síðustu mánuðum hafi að mörgu leiti verið óréttmæt.

Megin niðurstaða höfunda er sú að hverfandi hætta er á fjármálakreppu á Íslandi.

Íslenskt efnahagslíf og stöðugleiki á landinu hafa verið mikið í umræðunni á alþjóðlegum vettvangi að undanförnu og fram kom í máli Höllu Tómasdóttur, framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs, að fundirnir væru innlegg í umræðu um íslenskt hagkerfi og það væri von hennar að hún myndi dýpka umræðuna og ljá henni fræðilega vigt.

Myndir af fundinum í prentupplausn (300 pxl, TIF): Mynd 1  |  Mynd 2

Frekari upplýsingar um fundinn veita Halla Tómasdóttir framkvæmdastjóri í síma 510 7100.

Tengt efni

Fjölmennur fundur Viðskiptaráðs í Lundúnum

Viðskiptaráð Íslands kynnti skýrslu um fjármálastöðugleika á Íslandi í Lundúnum í dag. Fundurinn var annar í röðinni en VÍ stóð fyrir fundi í New York …
15. maí 2006

Um hundrað manns á fundi Viðskiptaráðs í Kaupmannahöfn

Viðskiptaráð Íslands kynnti skýrslu um fjármálastöðugleika á Íslandi í Kaupmannahöfn í dag. Eins og kunnugt er hefur verið nokkuð neikvæð umræða um …
23. júní 2006

Framþróun og staða fjármálakerfis Íslands - The Internationalisation of Iceland's Financial Sector

Viðskiptaráð Íslands kynnti nýja skýrslu um framþróun og stöðu fjármálakerfis Íslands á fjölmennum fundi í Lundúnum í dag. Skýrslan ber nafnið „The …
21. nóvember 2007

Fjölsóttur fundur um íslenskt fjármálalíf í Kaupmannahöfn

Viðskiptaráð Íslands stóð fyrir fjölmennum fundi um stöðu íslensks efnahagskerfis og fjármálafyrirtækja í samstarfi við Sendiráð Íslands í Danmörku og …
11. mars 2008

Fjölmenni á fundi um veisluna á Íslandi

Um 150 manns sátu morgunverðarfund Viðskiptaráðs um Íslandsvélina, „Veislan stendur enn, en...“. Á fundinum fjölluðu Vilhjálmur Egilsson …
13. september 2005

Morgunverðarfundur um þróun íslenks fjármálamarkaðar

Um 80 manns mættu á morgunverðarfund Viðskiptaráðs og Háskólans í Reykjavík um þróun íslensks fjármálamarkaðar sem haldinn var nú í morgun. Á fundinum …