Viðskiptaráð Íslands

Umsóknarfrestur vegna námsstyrkja rennur út á föstudag

Viðskiptaráð Íslands auglýsir eftir umsóknum um þrjá styrki til framhaldsnáms erlendis.  Einn styrkjanna er veittur úr Námssjóði Viðskiptaráðs um upplýsingatækni en hinir tveir úr Námssjóði Viðskiptaráðs.

  • Styrkirnir eru veittir til framhaldsnáms við erlenda háskóla eða aðra sambærilega skóla í greinum sem tengjast atvinnulífinu og stuðla að framþróun þess.  Ein styrkveitingin gerir kröfu um nám á sviði upplýsingatækni.
  • Skilyrði styrkveitingarinnar er að umsækjendur hafi lokið háskólanámi eða öðru sambærilegu námi.

  • Hver styrkur er að fjárhæð kr. 300.000 og verða þeir afhentir á Viðskiptaþingi, 7. febrúar 2007.

Umsóknir þurfa að hafa borist skrifstofu Viðskiptaráðs, Kringlunni 7, 103 Reykjavík, fyrir kl. 16:00 föstudaginn 19. janúar 2007.

Umsóknum þarf að fylgja afrit af prófskírteini, vottorð um skólavist erlendis og ljósmynd af umsækjanda.

Nánari upplýsingar hér

Menn eru hvattir til að vekja athygli námsmanna, sem eðli máls samkvæmt dvelja erlendis um þessar mundir, á styrkjunum.

Tengt efni

Umsóknarfrestur vegna námsstyrkja rennur út á föstudag

Viðskiptaráð Íslands auglýsir eftir umsóknum um þrjá styrki til framhaldsnáms erlendis. Einn styrkjanna er veittur úr Námssjóði Viðskiptaráðs um …
16. janúar 2007

Námsstyrkir

Viðskiptaráð Íslands auglýsir eftir umsóknum um þrjá styrki til framhaldsnáms erlendis. Einn styrkjanna er veittur úr Námssjóði Viðskiptaráðs um …
23. desember 2006

Námsstyrkir

Viðskiptaráð Íslands auglýsir eftir umsóknum um þrjá styrki til framhaldsnáms erlendis. Einn styrkjanna er veittur úr Námssjóði Viðskiptaráðs um …
16. janúar 2006

Umsóknarfrestur fyrir námsstyrki VÍ rennur út 27. janúar

Umsóknarfrestur fyrir námsstyrki Viðskiptaráðs Íslands fyrir árið 2012 rennur út kl. 16 föstudaginn 27. janúar. Ráðið hefur um árabil veitt styrki til …
23. janúar 2012

Námsstyrkir Viðskiptaráðs

Viðskiptaráð Íslands auglýsir eftir umsóknum um fjóra styrki til framhaldsnáms erlendis. Tveir styrkjanna eru veittir úr Námssjóði Viðskiptaráðs um …
23. desember 2009

Námsstyrkir Viðskiptaráðs

Viðskiptaráð Íslands auglýsir eftir umsóknum um fjóra styrki til framhaldsnáms erlendis. Tveir styrkjanna eru veittir úr Námssjóði Viðskiptaráðs um …
23. desember 2009