Viðskiptaráð Íslands

Opið fyrir umsóknir í Menntasjóð VÍ

Opið er fyrir umsóknir um námsstyrki úr Menntasjóði Viðskiptaráðs Íslands (MVÍ). Umsóknarfrestur er til og með 25. janúar 2026.

Markmið námsstyrkja MVÍ er að styðja nemendur í framhaldsnámi til að sækja sér fjölbreytta og alþjóðlega menntun í hæsta gæðaflokki, í greinum sem tengjast atvinnulífinu og stuðla að framþróun þess.

Hlutverk MVÍ er að auka samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs innbyrðis sem og gagnvart öðrum þjóðum með því að efla og bæta menntun og rannsóknir á öllum skólastigum sem nýtist atvinnulífinu og styðja við nýsköpun atvinnulífs.

Nánari upplýsingar um MVÍ og lista yfir fyrri styrkþega má finna hér.

Að þessu sinni verða veittir 2-3 styrkir, hver að upphæð 1.500.000 kr., en styrkþegarnir verða kynntir á Viðskiptaþingi 12. febrúar 2026.

Lagt verður mat á allar umsóknir og þeim forgangsraðað með tilliti til þess hversu vel þær samrýmast framangreindu markmiði og hlutverki sjóðsins.

Við hvetjum framhaldsnema til að sækja um og vekjum athygli á að umsækjendur þurfa að vera í fullu framhaldsnámi við erlendan háskóla.

Fyrirspurnum varðandi námsstyrkjasjóð MVÍ er svarað í gegnum netfangið styrkir@vi.is.

Tengt efni

Viðskiptaráð styrkir þrjá afreksnema á erlendri grundu

Styrkþegar í ár eru Arnar Ágúst Kristjánsson, Hildur Þóra Hákonardóttir og Jón Valur Björnsson. Hvert þeirra hlýtur styrk að upphæð 1.500.000 kr.
3. mars 2026

Opið fyrir umsóknir í Menntasjóð VÍ

Opið er fyrir umsóknir um námsstyrki úr Menntasjóði Viðskiptaráðs Íslands (MVÍ). Umsóknarfrestur er til og með 20. janúar 2025.
18. desember 2024

Vilt þú efla samkeppnishæfni Íslands?

Nú er opið fyrir umsóknir um styrki úr Framtíðarsjóði Viðskiptaráðs Íslands. Umsóknarfrestur er til og með 14. janúar 2024.
5. desember 2023

Ert þú í framhaldsnámi erlendis?

Nú er opið fyrir umsóknir um námsstyrki úr Menntasjóði Viðskiptaráðs Íslands (MVÍ). Umsóknarfrestur er til og með 8. janúar 2023.
29. nóvember 2022

Opið fyrir umsóknir um námsstyrki

Opið er fyrir umsóknir um námsstyrki úr Menntasjóði Viðskiptaráðs frá og með 7. desember 2021. Umsækjendur þurfa að vera í fullu framhaldsnámi …
7. desember 2021