Viðskiptaráð Íslands auglýsir eftir umsóknum um þrjá styrki til framhaldsnáms erlendis. Einn styrkjanna er veittur úr Námssjóði Viðskiptaráðs um upplýsingatækni en hinir tveir úr Námssjóði Viðskiptaráðs.
Umsóknir þurfa að hafa borist skrifstofu Viðskiptaráðs, Kringlunni 7, 103 Reykjavík, fyrir kl. 16:00 föstudaginn 20. janúar 2006.
Umsóknum þarf að fylgja afrit af prófskírteini, vottorð um skólavist erlendis og ljósmynd af umsækjanda.
Nánari upplýsingar hér.
Menn eru hvattir til að vekja athygli námsmanna, sem eðli máls samkvæmt dvelja erlendis um þessar mundir, á styrkjunum.