Viðskiptaráð Íslands

Til hamingju með afmælið

Í dag eru 90 ár liðin frá stofnun Viðskiptaráðs Íslands. Í tilefni af afmælinu býður ráðið félagsmönnum sínum og velvildarmönnum til afmælisfundar og móttöku í Salnum og Gerðarsafni, Kópavogi. Á fundinum verða 90 tillögur að bættri samkeppnishæfni Íslands kynntar og afhentar ráðherrum nýrrar ríkisstjórnar. Forsætisráðherra heldur í kjölfarið ávarp. Síðan mun rektor Háskólans í Reykjavík kynna framtíðarsýn skólans. Að lokum munu fulltrúar ríkisstjórnarinnar ræða afmælistillögur Viðskiptaráðs Íslands.

Fundurinn hefst kl. 16:00 í Salnum og að fundi loknum verður haldin móttaka í Gerðarsafni þar sem sýnd verða verk úr safni Þorvaldar í Síld og fiski, en hann er fyrrum formaður Viðskiptaráðs.

Viðskiptaráð þakkar félögum sínum gott og gæfuríkt samstarf á síðastliðnum 90 árum og vonast til að sem flestir þeirra sjái sér fært að mæta í dag.

Tengt efni

Til hamingju með afmælið

Í dag eru 90 ár liðin frá stofnun Viðskiptaráðs Íslands. Í tilefni af afmælinu býður ráðið félagsmönnum sínum og velvildarmönnum til afmælisfundar og …
17. september 2007

90 ára afmæli Viðskiptaráðs Íslands

Í tilefni af 90 ára afmæli Viðskiptaráðs verður haldinn afmælisfundur í Salnum, Kópavogi, þann 17. september kl. 16:00. Í kjölfarið verður haldin …
17. september 2007

Finnur kynnti 90 tillögurnar

Í ræðu sinni á 90 ára afmæli Viðskiptaráðsins í dag kynnti Finnur Oddson 90 tillögur að bættri samkeppnishæfni Íslands. Finnur sagði meðal annars “90 …
17. september 2007

Viðskiptaráð Íslands 90 ára

Í dag eru 90 ár liðin frá stofnun Verzlunarráðs Íslands, en ráðið var stofnað í KFUM húsinu við Amtmannsstíg í Reykjavík þann 17. september 1917.
17. september 2007

Hvernig verður Ísland best í heimi?

Viðskiptaráð verður 90 ára á þessu ári, en frá upphafi hefur ráðið lagt sig í framkróka um að vera í fararbroddi nýrra hugmynda um umhverfi …
7. febrúar 2007

Samstarfi ríkisstjórnar og Viðskiptaráðs fagnað

Í ávarpi sínu á 90 ára afmælisfundi Viðskiptaráðs lýsti Geir H. Haarde, forsætisráðherra, yfir fullum vilja til frekara samstarfs við Viðskiptaráð og …
17. september 2007