Viðskiptaráð Íslands

Viðskiptaráð óskar nýrri ríkisstjórn velfarnaðar í starfi

Ný ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, undir forystu Jóhönnu Sigurðardóttur, hefur tekið til starfa. Stjórnin mun starfa í skamman tíma, eða fram að alþingiskosningum, sem fyrirhugað er að halda í apríl á þessu ári. Viðskiptaráð óskar nýrri ríkisstjórn velfarnaðar í starfi sínu. Í gegnum tíðina hefur Viðskiptaráð átt farsælt samstarf við stjórnvöld um eflingu íslensks efnahags- og viðskiptalífs og standa vonir ráðsins til þess að svo verði áfram.

Ráðherralisti nýrrar stjórnar:

Forsætisráðherra: Jóhanna Sigurðardóttir
Fjármála-, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra: Steingrímur J. Sigfússon
Utanríkis- og iðnaðarráðherra: Össur Skarphéðinsson
Menntamálaráðherra: Katrín Jakobsdóttir
Félagsmálaráðherra: Ásta R. Jóhannesdóttir
Heilbrigðisráðherra: Ögmundur Jónasson
Dómsmálaráðherra: Ragna Árnadóttir
Viðskiptaráðherra: Gylfi Magnússon
Samgönguráðherra: Kristján L. Möller
Umhverfisráðherra: Kolbrún Halldórsdóttir

Tengt efni

Viðskiptaráð óskar nýrri ríkisstjórn velfarnaðar í starfi

Ný ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, undir forystu Jóhönnu Sigurðardóttur, hefur tekið til starfa. Stjórnin mun …
2. febrúar 2009

Umsögn um frumvarp til laga um Nýsköpunarsjóðinn Kríu

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar ofangreind áform. Ráðið fagnar að með því sé stigið skref í átt að sameiningu sjóða sem falla undir málefnasvið …
30. apríl 2024

Endurskipulagning stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar áform um endurskipulagningu stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins. Ráðið fagnar áður framlögðum …
20. október 2023

Viðskiptaráð óskar nýrri ríkisstjórn farsældar í starfi

Viðskiptaráð óskar nýrri ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar farsældar í starfi sínu á komandi kjörtímabili. Það er ljóst að fjölmörg brýn …
25. maí 2007

Verkefnalisti nýrrar ríkisstjórnar

Ný ríkisstjórn hefur birt verkefnalista næstu vikna og mánaða. Atriðin sem lögð er áhersla á lúta einkum að atvinnulífinu, fjármálakerfinu, heimilunum …
2. febrúar 2009

Samstarfi ríkisstjórnar og Viðskiptaráðs fagnað

Í ávarpi sínu á 90 ára afmælisfundi Viðskiptaráðs lýsti Geir H. Haarde, forsætisráðherra, yfir fullum vilja til frekara samstarfs við Viðskiptaráð og …
17. september 2007