Viðskiptaráð Íslands

Morgunverðarfundur: Hlutverk lífeyrissjóða í endurreisninni

Fimmtudaginn 22. október næstkomandi stendur Viðskiptaráð Íslands fyrir morgunverðarfundi á Hilton Reykjavík Nordica um hlutverk lífeyrissjóðanna í því starfi sem framundan er við endurreisn hagkerfisins. Fundurinn er haldinn í tilefni af nýútgefinni skoðun Viðskiptaráðs, þar sem ráðið lagði fram hugmyndir að fjölbreyttari og umfangsmeiri aðkomu sjóðanna en rætt hefur verið um á undanförnum misserum.

Dagskrá fundarins:

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra
Opnunarávarp

Benedikt Jóhannesson, ritstjóri Vísbendingar
Lífeyrissjóðir: Bjargvættir eða blórabögglar?

Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða
Hlutverk lífeyrissjóða í ólgusjó kreppunnar

Frosti Ólafsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Viðskiptaráðs
Hugmyndir Viðskiptaráðs

Pallborðsumræður
Framsögumenn svara spurningum fundargesta

Fundarstjóri verður Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs.

Fundargjald er 2.900 kr. með léttum veitingum.

Skráning fer fram með því að senda póst á birna@vi.is.

Tengt efni

Hlutverk lífeyrissjóða í endurreisninni

Fimmtudaginn 22. október næstkomandi stendur Viðskiptaráð Íslands fyrir morgunverðarfundi á Hilton Reykjavík Nordica um hlutverk lífeyrissjóðanna í …

Arðrán eða ávinningur? Bein erlend fjárfesting og áhrif á endurreisn

Á þriðjudag í næstu viku (6. desember) standa Viðskiptaráð Íslands og Íslandsstofa fyrir morgunverðarfundi um áhrif beinnar erlendrar fjárfestingar á …
1. desember 2011

Opinn fundur um skattamál fyrirtækja 23. september

Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð Íslands efna til opins morgunverðarfundar um skattamál fyrirtækja fimmtudaginn 23. september nk. á Hótel …
9. september 2010

Opinn fundur um skattamál fyrirtækja 23. september

Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð Íslands efna til opins morgunverðarfundar um skattamál fyrirtækja fimmtudaginn 23. september nk. á Hótel …

Opinn fundur um skattamál fyrirtækja

Viðskiptaráð Íslands og Samtök atvinnulífsins efna til opins morgunverðarfundar um skattamál fyrirtækja fimmtudaginn 23. september nk. á Hótel …
23. september 2010

Morgunverðarfundur: Viðskiptasiðferði og hlutverk háskólanna

Þriðjudaginn 18. október næstkomandi stendur Viðskiptaráð Íslands, Félag löggiltra endurskoðenda, Félag viðskipta- og hagfræðinga, Lögmannafélag …