Viðskiptaráð Íslands

Ný skýrsla: Fjármál hins opinbera - aðrar leiðir færar

Viðskiptaráð Íslands hefur á undanförnum vikum og mánuðum rýnt aðgerðir stjórnvalda á sviði ríkisfjármála. Í þeirri stefnu sem mörkuð hefur verið felst takmarkaður niðurskurður útgjalda og veruleg aukning skattheimtu.  Þessi leið er að mati Viðskiptaráðs afar misráðin og dregur úr sjálfbærni ríkisfjármála til framtíðar. Við núverandi aðstæður er heppilegra að fyrir stjórnvöld velji hagnýtar leiðir sem byggja á raunsæi og varðstöðu um heildarhagsmuni.

Af þessu tilefni gaf Viðskiptaráð út í dag skýrslu undir yfirskriftinni  Fjármál hins opinbera - aðrar leiðir færar. Skýrslunni er ætlað að bregða birtu á þróun ríkisfjármála undanfarin ár, galla á fyrirhuguðum skattabreytingum og mögulegar leiðir að því marki að koma á jöfnuði ríkisfjármála og tryggja áfram velferð í íslensku samfélagi.

Skýrslan var kynnt á blaðamannafundi í dag, en í henni eru lagðar fram ýmsar tillögur sem fela m.a. í sér aðra og einfaldari nálgun á breytingar á skattkerfi, endurskoðun á útgjaldaliðum ráðuneyta, aðgerðir til að auka umsvif í hagkerfinu, tekjuöflun í gegnum lífeyrissjóði og með sölu ríkiseigna, endurskoðun í menntamálum, samdrátt í opinberum launakostnaði, endurskoðun á útgjöldum til sveitarfélaga og eflingu fjárlagaferlis. Er það mat Viðskiptaráðs að þessar leiðir séu betur til þess fallnar að næra og byggja upp hagkerfið sem fyrst á nýjan leik og verja þannig störf, almenn lífskjör og tryggja sjálfbærni hagkerfisins til lengri tíma litið.

Með skýrslunni vonast Viðskiptaráð til að leggja lóð á vogarskálarnar í umræðu um það hagræðingarstarf sem framundan er í fjármálum ríkis- og sveitarfélaga. Hagfellt skattkerfi er einn helsti grundvöllur langtímasamkeppnishæfni þjóða og mikilvæg forsenda þess að bati hagkerfisins verði sem skjótastur.

Skýrsluna má nálgast hér.

Glærur frá blaðamannafundi má nálgast hér

Tengt efni

Ný skýrsla: Fjármál hins opinbera - aðrar leiðir færar

Viðskiptaráð Íslands hefur á undanförnum vikum og mánuðum rýnt aðgerðir stjórnvalda á sviði ríkisfjármála. Í þeirri stefnu sem mörkuð hefur verið …
16. desember 2009

Athugasemdir Viðskiptaráðs við fyrirhugaðar skattabreytingar

Viðskiptaráð hefur fylgst náið með aðgerðum stjórnvalda á sviði ríkisfjármála á undanförnum vikum og mánuðum, sem margar hverjar eru afar misráðnar. …
15. desember 2009

Fjárlög 2017: of lítið aðhald

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn um fjárlög ársins 2017. Ráðið gerir athugasemdir við þá stefnu sem mörkuð er í fjárlögunum. Áætlaður afgangur af …
16. desember 2016

Ríkisfjármál - Samstaða um bætt vinnubrögð

Fram til þessa hefur stefna ríkisstjórnarinnar í aðlögun ríkisfjármála miðað að því að fara blandaða leið niðurskurðar og tekjuöflunar. Sitt sýnist …
14. júní 2010

Skattaskýrsla AGS: Hvatt til einföldunar á skattkerfinu

Nýverið gaf Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn út skýrslu um íslenska skattkerfið. Skýrslan var unnin að beiðni stjórnvalda en þar eru kynntar tillögur …
13. júlí 2010

Skattaskýrsla AGS: Hvatt til einföldunar á skattkerfinu

Nýverið gaf Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn út skýrslu um íslenska skattkerfið. Skýrslan var unnin að beiðni stjórnvalda en þar eru kynntar tillögur …
13. júlí 2010