Viðskiptaráð Íslands

Hagsmunamál fyrirtækja í forgrunni

Viðskiptaráð hefur undanfarið unnið að ýmsum hagsmunamálum íslensks atvinnulífs. Á meðal verkefna má nefna formlega beiðni til fjármálaráðuneytisins þess efnis að greiðsludreifing aðflutnings- og vörugjalda verði sem fyrst komið á fyrir árið 2010.

Beiðnin á rætur sínar að rekja til laga nr. 17/2009 þar sem slíkri dreifingu var komið á vegna greiðslu aðflutnings- og vörugjalda fyrir árið 2009. Með lögunum brást fjármálaráðuneytið við gjörbreyttum aðstæðum íslensks atvinnulífs vegna gengisfalls, samdráttar í eftirspurn og verðbólguskots og á hrós skilið fyrir skjót viðbrögð. Lögin mæltust afar vel fyrir hjá íslenskum fyrirtækjum og samtökum atvinnurekenda og einhugur var um skjóta afgreiðslu þeirra meðal allra flokka á Alþingi.

Stjórnvöld létti fyrirtækjum róðurinn
Vonir Viðskiptaráðs standa til að ráðherra bregðist skjótt við og leggi fyrir Alþingi frumvarp af þessu tagi á fyrstu starfsdögum þingsins, enda er fyrsta  greiðslutímabil þessara gjalda hafið með gjalddaga þann 15. mars næstkomandi. Með því að ákveða slíka dreifingu snemma árs og það fyrir árið í heild og með því að heimila fulla innsköttun munu stjórnvöld án efa létta mörgum fyrirtækjum róðurinn.

Þá hefur Viðskiptaráð jafnframt óskað eftir því að fjármálaráðuneytið kanni hvort unnt sé að endurskoða, a.m.k. tímabundið, útreikning bifreiðahlunninda. Vegna gengisfalls krónunnar hafa mánaðarlegar skattgreiðslur starfsmanna af slíkum hlunnindum hækkað umtalsvert. Í ljósi þegar orðinnar kjararýrnunar og þar sem fyrirtæki hafa almennt ekki tök á að koma til móts við starfsmenn í þessari stöðu taldi ráðið rétt að vekja athygli ráðuneytisins á þessu máli.

Tengt efni

Hagsmunamál fyrirtækja í forgrunni

Viðskiptaráð hefur undanfarið unnið að ýmsum hagsmunamálum íslensks atvinnulífs. Á meðal verkefna má nefna formlega beiðni til fjármálaráðuneytisins …
22. janúar 2010

Unnið að því að fá frest á greiðslu opinberra gjalda

Vegna erfiðrar lausafjárstöðu margra fyrirtækja hefur Viðskiptaráð, í samvinnu við fleiri aðila, beitt sér fyrir því að hið opinbera veiti frest á …
13. nóvember 2008

Unnið að því að fá frest á greiðslu opinberra gjalda

Vegna erfiðrar lausafjárstöðu margra fyrirtækja hefur Viðskiptaráð, í samvinnu við fleiri aðila, beitt sér fyrir því að hið opinbera veiti frest á …
13. nóvember 2008

Viðskiptalífið taki forystu í loftslagsmálum

Ríkisstjórnin kynnti í haust Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. Viðskiptaráð vill leggja sitt af mörkum til að markmið áætlunarinnar náist. Stuðningur …
22. nóvember 2018

Gott samstarf atvinnulífs og yfirvalda í ársreikningamálum

Viðskiptaráð hefur í starfsemi sinni á síðustu misserum hvatt fyrirtæki til að standa skil á ársreikningum sínum og bent á mikilvægi þess fyrir …
28. desember 2010

Skýrsla um ríkisfjármál í desember

Viðskiptaráð hefur um árabil látið sig varða aðgerðir stjórnvalda á sviði ríkisfjármála. Í þeim efnum hefur ráðið barist fyrir samkeppnishæfara …
27. nóvember 2009