Viðskiptaráð Íslands

Viðskiptaþing 2010: 40% í samkeppni við hið opinbera

40% forsvarsmanna fyrirtækja í íslensku atvinnulífi telja opinberar stofnanir eða fyrirtæki í opinberum rekstri vera í samkeppni við sitt fyrirtæki. Þá telja 51% fyrirtækja í þjónustu sig vera í samkeppni við hið opinbera, 49% fyrirtækja í verslun og 58% fyrirtækja í byggingar- eða verktakastarfsemi.

Þetta kemur fram í könnun um rekstrarumhverfi fyrirtækja á Íslandi sem Capacent Gallup framkvæmdi fyrir Viðskiptaráð, en henni lauk 3. febrúar síðastliðinn. Niðurstöður könnunarinnar verða birtar og útfærðar nánar í skýrslu um efnið sem kemur út samhliða Viðskiptaþingi, sem haldið verður þann 17. febrúar næstkomandi á Hilton Reykjavík Nordica.

Meðal annara áhugaverðra niðurstaðna könnunarinnar er að 39% fyrirtækja, sem eru í miklum alþjóðlegum viðskiptum, telja sig vera í samkeppni við hið opinbera. Þessar niðurstöður vekja óneitanlega upp spurningar varðandi umfang þjónustuframboðs hins opinbera og hvort verkaskipting ríkis og einkaaðila sé eins og best verður á kosið.

Nánari upplýsingar um Viðskiptaþing 2010 má nálgast hér. 

Skráning er hafin hér

Tengt efni

Viðskiptaþing 2010: 40% í samkeppni við hið opinbera

40% forsvarsmanna fyrirtækja í íslensku atvinnulífi telja opinberar stofnanir eða fyrirtæki í opinberum rekstri vera í samkeppni við sitt fyrirtæki. …
8. febrúar 2010

Rúmlega 50% fyrirtækja í samkeppni við hið opinbera

Þann 16. febrúar s.l. var haldið Viðskiptaþing Viðskiptaráðs Íslands undir yfirskriftinni <a href=/malefnastarf/vidburdir/>Tökumst á við tækifærin - …
3. mars 2011

Viðskiptaþing 2010: Skattabreytingar leiða til fækkunar starfsfólks hjá 45% fyrirtækja

45% forsvarsmanna íslenskra fyrirtækja áætla að skattabreytingar stjórnvalda muni leiða til fækkunar starfsfólks í fyrirtækjum þeirra. Þá telja um 50% …

Viðskiptaþing 2010: Könnun á viðhorfum forsvarsmanna fyrirtækja

Til umfjöllunar á Viðskiptaþingi 2010 verða meðal annars niðurstöður könnunar sem Capacent Gallup framkvæmdi fyrir Viðskiptaráð þar sem leitað var …
14. febrúar 2010

Opinber samkeppnisrekstur í net- og upplýsingakerfum

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn um frumvarp til laga um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða. Telur ráðið m.a. að hið opinbera eigi …
24. ágúst 2018

Snyrtivöruverslun ríkisins

Í Flugstöð Leifs Eiríkssonar rekur íslenska ríkið í gegnum Fríhöfnina ehf. sex verslanir sem í sumum tilfellum eru í beinni samkeppni við innlenda …
12. nóvember 2014