Viðskiptaráð Íslands

Endurskoðun markaðsgreininga dregist árum saman: bréf til innviðaráðherra

Viðskiptaráð hefur sent innviðaráðherra bréf vegna verulegra tafa á endurskoðun markaðsgreininga Fjarskiptastofu. Í bréfinu er bent á að kvaðir á fjarskiptafyrirtæki geti haldist í gildi árum saman þótt forsendur þeirra hafi breyst, með neikvæðum áhrifum á samkeppni, fjárfestingu og réttaröryggi.

Með bréfinu vill Viðskiptaráð vekja athygli á því að dæmi séu um að markaðsgreiningar Fjarskiptastofu hafi ekki verið endurskoðaðar fyrr en mörgum árum eftir að lögbundnir frestir liðu. Afleiðingin er meðal annars sú að kvaðir geta enn verið í gildi á grundvelli ákvarðana sem teknar voru fyrir meira en áratug.

Samkvæmt fjarskiptalögum ber Fjarskiptastofu að jafnaði að framkvæma markaðsgreiningu og tilkynna Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) um fyrirhugaðar aðgerðir innan fimm ára frá fyrri ákvörðun um viðkomandi markað. Stofnuninni ber jafnframt að fylgjast með þróun markaða og meta án tafar hvort breyttar aðstæður kalli á breytingu eða afturköllun gildandi kvaða.

Í bréfinu bendir Viðskiptaráð á að ESA hafi ítrekað gert athugasemdir við tafir á endurskoðun markaðsgreininga hér á landi. Þegar slík endurskoðun dregst árum saman sé hætta á að íþyngjandi kvaðir haldist í gildi þótt markaðsforsendur þeirra hafi breyst verulega eða fallið brott.

Kvaðir verða að fylgja markaðsaðstæðum

Sértækar kvaðir á fjarskiptamarkaði geta verið nauðsynlegar þegar skilyrði fyrir þeim eru uppfyllt. Þær eru þó í eðli sínu verulega íþyngjandi og geta meðal annars falið í sér kröfur um kostnaðargreiningu, verðlagningu, bókhaldslegan aðskilnað og viðmiðunartilboð.

Á sama tíma hefur fjarskiptamarkaðurinn tekið miklum breytingum á síðasta áratug með uppbyggingu nýrra fjarskiptainnviða og aukinni samkeppni á einstökum svæðum. Séu markaðsgreiningar ekki uppfærðar í takt við þessa þróun geta kvaðir sem byggjast á úreltum forsendum haldið áfram að takmarka svigrúm fyrirtækja til að bregðast við samkeppni, til dæmis með breytingum á verði, þjónustuframboði og viðskiptakjörum. Við slíkar aðstæður getur regluverk sem ætlað er að stuðla að virkri samkeppni farið að vinna gegn sama markmiði.

Kallað eftir skýrri áætlun

Viðskiptaráð hvetur innviðaráðherra til að bregðast við stöðunni. Sjálfstæði Fjarskiptastofu við meðferð einstakra mála breyti ekki ábyrgð stjórnvalda á að tryggja að stofnunin geti sinnt lögbundnum verkefnum sínum og að skuldbindingar Íslands samkvæmt EES-regluverkinu séu uppfylltar.

Ráðið leggur til að ráðherra kalli eftir skýrum upplýsingum frá Fjarskiptastofu um hvaða markaðsgreiningar séu komnar fram yfir lögbundna fresti, hvers vegna tafir hafi orðið og hvenær fyrirhugað sé að ljúka greiningunum.

Jafnframt verði lagt mat á hvort stofnunin hafi nægan mannafla, sérfræðiþekkingu og önnur úrræði til að sinna verkefnum sínum innan tilskilinna tímamarka.

Úreltar kvaðir endurskoðaðar án frekari tafa

Skilvirkt eftirlit felst ekki aðeins í því að leggja kvaðir á fyrirtæki þegar tilefni er til, heldur einnig í því að endurmeta reglulega hvort áfram sé þörf á þeim.

Viðskiptaráð telur því mikilvægt að gildandi kvaðir sem byggjast á úreltum markaðsgreiningum verði teknar til endurskoðunar án frekari tafa og þær felldar niður eða aðlagaðar þar sem markaðsaðstæður réttlæta ekki lengur óbreytta beitingu þeirra.

Tímanleg endurskoðun markaðsgreininga er þannig ekki aðeins formsatriði. Hún er forsenda þess að eftirlit á fjarskiptamarkaði sé fyrirsjáanlegt, í réttu hlutfalli við aðstæður og styðji við samkeppni og fjárfestingu fremur en að standa henni í vegi.

Tengt efni

Aukið öryggi fjarskipta kalli ekki á aukinn opinberan rekstur

Viðskiptaráð leggur áherslu á að aukið öryggi fjarskipta þurfi ekki að kalla á aukinn opinberan rekstur, varar við gullhúðun við innleiðingu …
28. ágúst 2026

Inngrip í verðákvarðanir geta dregið úr samkeppni

Viðskiptaráð telur að fákeppni jafngildi ekki skorti á samkeppni og að vangaveltur um þegjandi samhæfingu þarfnist traustari gagna. Bein inngrip í …
18. ágúst 2026

Ár liðið frá ESA kvörtun vegna ólögmætrar ríkisaðstoðar á húsnæðismarkaði

Eitt ár er nú liðið frá því að Viðskiptaráð sendi kvörtun til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) vegna ólögmætrar ríkisaðstoðar á húsnæðismarkaði. …
11. júní 2026

Fjármálaráðherra ekki svarað erindi Viðskiptaráðs ári síðar

Viðskiptaráð sendi fyrir einu ári bréf til fjármála- og efnahagsráðherra varðandi tvísköttun á hlutdeildarskírteinum fyrirtækja, sem dregur úr …
13. maí 2026

Brýnt að liðka fyrir raforkuframleiðslu

Viðskiptaráð hefur um árabil kallað eftir aðgerðum til einföldunar regluverks og flýtingu uppbyggingar raforkuinnviða og styður áform stjórnvalda í þá …
31. mars 2026

Steinar í götu samrunaaðila

„Virk samkeppni er forsenda framleiðni- og hagvaxtar, en reglur sem eiga að tryggja hana mega ekki verða of íþyngjandi. Samkeppnislög þurfa að stuðla …
23. október 2025