Viðskiptaráð Íslands

Fjármálaráðherra ekki svarað erindi Viðskiptaráðs ári síðar

Viðskiptaráð sendi fyrir einu ári bréf til fjármála- og efnahagsráðherra varðandi tvísköttun á hlutdeildarskírteinum fyrirtækja, sem dregur úr fjárfestingum og skaðar samkeppnishæfni landsins. Ráðherra hefur ekki enn svarað erindi ráðsins þrátt fyrir ítrekun.

Fyrir ári síðan sendi Viðskiptaráð bréf til fjármálaráðherra í kjölfar Skattadagsins 2025. Í erindi á deginum var vakin athygli á misbresti við skattlagningu fjárfestinga fyrirtækja í verðbréfasjóðum og lagðar fram tillögur til úrbóta. Um er að ræða skattlagningu á óinnleystan hagnað hlutdeildarskírteina fyrirtækja sem síðan er aftur skattlagður við innlausn.

Þegar óinnleystur hagnaður er skattlagður á þennan máta getur það þýtt að fyrirtæki selji hlutdeildarskírteini sín einfaldlega því þau hafa ekki fjármagn til að greiða skattinn af þeim. Slík tvísköttun fælir fyrirtæki frá fjárfestingum í verðbréfasjóðum og gerir slíkar fjárfestingar óstöðugri, með minni sérhæfingu og áhættudreifingu. Þannig stuðlar skatturinn að verri nýtingu fjármagns en ella. Um er að ræða hagsmunamál fyrir Ísland en óskilvirk miðlun fjármagns fælir frá fjárfesta og veikir samkeppnishæfni landsins.

Ráðherra hefur ekki svarað erindinu ári síðar þrátt fyrir ítrekun. Viðskiptaráð gerir athugasemd við þessi vinnubrögð og telur þau ekki í samræmi við góða stjórnsýsluhætti. Ráðið skorar á ráðherrann að svara erindinu um hvort ráðherrann hyggist taka það til skoðunar og/eða taki afstöðu til þeirra tillagna sem þar koma fram.

Tengt efni

Ísland stenst ekki samkeppni um erlenda fjárfestingu

Viðskiptaráð hefur skilað umsögn um frumvarp sem miðar að því að einfalda regluverk í tengslum við erlendar fjárfestingar. Ráðið bendir á tækifæri til …
4. nóvember 2025

Fjárfestingar í verðbréfasjóðum tvískattlagðar: bréf til fjármálaráðherra

Viðskiptaráð hefur sent fjármála- og efnahagsráðherra bréf með hvatningu um að lagfæra ágalla sem veldur tvísköttun fjárfestinga á milli fyrirtækja í …
14. maí 2025

Að skattleggja eggin áður en hænan verpir

Umræða um hækkun fjármagnstekjuskatts skýtur reglulega upp kollinum. En sjaldan er framkvæmd skattlagninginnar rædd þó hún geti haft alveg jafn mikil …
30. janúar 2025

Aðgát skal höfð í nærveru fjármagns: Erindi á Skattadegi 2025

Hugmyndaríkt fólk þarf aðgang að fjármagni, svo það geti hrint hugmyndum sínum í framkvæmd. Flest lönd leitast við laða til sín öflugan mannauð og …
16. janúar 2025

Enn er stefnt að íþyngjandi innleiðingu

Viðskiptaráð ásamt Samtökum atvinnulífsins og Samtökum fjármálafyrirtækja skilaði inn umsögn til Alþingis vegna endurflutts frumvarps til laga um …
12. október 2023

Viðskiptaráð reiðubúið til samvinnu um faglega meðferð málsins

Umsögn Viðskiptaráðs um drög að frumvarpi til laga um tekjuskatt (mál nr. 23)
14. júní 2022