Viðskiptaráð Íslands

Vel heppnað tengslakvöld

Árlegt tengslakvöld Viðskiptaráðs og Icelandic Startups fór fram í níunda skipti síðastliðinn fimmtudag og gestgjafi kvöldsins var Deloitte. Tengslakvöldunum var hleypt af stokkunum árið 2009 með það að markmiði að leiða saman reynslumikla stjórnendur og áhugasama frumkvöðla sem eru að stíga sín fyrstu skref í atvinnurekstri.

Fulltrúar tíu nýsköpunarfyrirtækja tóku þátt í viðburðinum ásamt stjórnendum úr atvinnulífinu og starfsfólki Viðskiptaráðs, Icelandic Startups og Deloitte. Sigurður Páll Hauksson, forstjóri Deloitte, hóf viðburðinn á því að bjóða gesti velkomna og kynnti Technology Fast 50 verkefnið sem er kjarninn í framlagi fyrirtækisins til nýsköpunar. Með verkefninu er skapaður sérstakur vettvangur fyrir íslensk tæknifyrirtæki til að vekja athygli fjárfesta, mögulegra samstarfsaðila og annarra hagsmunaaðila í fjölmörgum löndum.

Viðskiptaráð þakkar Deloitte, Icelandic Startups, mentorum og fulltrúum þeirra nýsköpunarfyrirtækja sem tóku þátt fyrir skemmtilega og áhugaverða kvöldstund.

Upplýsingar um nýsköpunarfyrirtækin má sjá hér:

  • Aldin Dynamics - skapar hugbúnað sem gerir efnishönnun fyrir sýndarveruleika markvissari og öflugri
  • ANKRA - þróar og markaðssetur fæðubótaefni og húðvörur sem vinna saman að bættu útliti og líðan bæði innan frá sem og utan.
  • Fuglafár - spil sem gerir börnum og fólki á öllum aldri kleift að bæta þekkingu á íslenskum fuglum.
  • HAp+ - einföld en byltingarkennd uppfinning sem stuðlar að bættri tannheilsu og líðan einstaklinga með munnþurk.
  • Platome - þróar aðferðir fyrir vísindamenn sem rannsaka stofnfrumur til að flýta fyrir þróun á stofnfrumumeðferðum og stuðla að framförum í læknisfræði.
  • Radiant Games - býr til skemmtilegar forritunarupplifanir sem auðvelda krökkum fyrstu skrefin inn í heim tölvunarfræðinnar.
  • Study Cake - snjallforrit sem gerir spurningaleik úr vinsælustu barnabókum landsins.
  • Tagplay - vefkerfi sem gerir fólki kleift að uppfæra heimasíður sínar með samfélagsmiðlum.
  • Wasabi Iceland - ræktun á hágæða wasabi í gróðurhúsum með hreinu íslensku vatni og grænni orku til útflutnings.
  • Watchbox - snjallforrit sem gerir fólki kleift að deila myndböndum og myndum í gegnum rásir.

Smelltu hér til að skoða myndir frá tengslakvöldinu

Tengt efni

Mentorar og sprotar komu saman á tengslakvöldi

Árlegt tengslakvöld Viðskiptaráðs og Klak Innovit, NÝ-SKÖPUN-NÝ-TENGSL, fór fram í áttunda skipti í gær og gestgjafi kvöldsins var Ölgerðin. …
5. júní 2015

Vel heppnaður tengslaviðburður hjá Marel

Tengslaviðburðurinn NÝ-SKÖPUN-NÝ-TENGSL fór fram í tíunda skipti í gærkvöldi. Að þessu sinni bauð Marel heim og tóku þær Linda Jónsdóttir, …
23. maí 2018

Ný:sköpun Ný:tengsl – árangursríkur kvöldverðarfundur

Í gærkvöldi var haldinn fyrsti kvöldverðarfundur Viðskiptaráðs og Innovit undir yfirskriftinni Ný-Sköpun-Ný-Tengsl. Markmið fundarins var að búa til …
29. maí 2009

66°Norður bauð heim hópi forstjóra og frumkvöðla

Á dögunum fór fram viðburðurinn Ný-sköpun Ný-tengsl sem er samstarfsverkefni Viðskiptaráðs Íslands og Icelandic Startups. Markmiðið er að leiða saman …
24. maí 2019

Ný-sköpun-Ný-tengsl í 10 ár

Viðskiptaráð hélt Ný-sköpun-Ný-tengsl viðburðinn í tíunda sinn þann 18. maí s.l. í samstarfi við Icelandic Startups. Ráðið leggur mikla áherslu á að …
22. maí 2017

Skemmtileg kvöldstund full af nýjum hugmyndum

Í gærkvöldi var haldinn í annað sinn kvöldverðarfundur Viðskiptaráðs og Innovit undir yfirskriftinni
1. október 2010