Viðskiptaráð Íslands

Hver er þinn áttaviti?

Í gömlum viðskipta- og hagfræðibókum er heimurinn einfaldur. Fyrirtæki eru rekin til að skila hagnaði og þurfa til þess að fjárfesta vel, halda aftur af kostnaði og framleiða góða vöru. Þessi mikla einföldun er stundum gagnleg og á við sem slík. Við erum þó sífellt að læra betur hversu mikil einföld þetta er.

Það er oft talað um að við lifum á miklum óvissutímum og sjaldan jafn oft og í dag. Við horfum á tollastríð úti í heimi, breytingar á markaðsaðstæðum, ófyrirsjáanlegar pólitískar ákvarðanir og fordæmalausar áskoranir í loftslagsmálum. Í þessari síbylju og stormi getur verið erfitt að fóta sig og gera áætlanir sem geta orðið úreltar um leið og blekið þornar.

Þurfum við ekki einfaldlega að standa storminn af okkur? Stundum þurfum við að gera það. Staðreyndin er þó sú að óvissa er viðvarandi ástand. Það er þekkt óvissa, eins og hvernig kjarasamningar munu fara, og svo óþekkt óvissa um framtíðaráskoranir, sem eru handan við hornið og enginn getur spáð fyrir um. Ofan á þetta eykst álagið á toppstykkið með sífellt meiri kröfum nútímasamfélagsins sem kallar á athygli, einbeitingu og frjóa hugsun í hvarvetna sem er sífellt trufluð af áreiti snjalltækja. Mannskepnan þróaðist ekki til að lifa í þessu umhverfi svo við þurfum að finna leiðir til að komast af í nútímasamfélagi. Er nema von að kulnun hafi verið orð ársins 2018?

Samhliða þessari þróun stöndum við sem samfélag frammi fyrir gríðarstórum áskorunum sem hafa varanleg og gríðarleg áhrif um alla framtíð. Auðvelda leiðin er að slá úrlausn þeirra á frest og horfa bara á næsta þingfund, næstu kosningar, næsta ársfjórðungsuppgjör eða næsta aðalfund. Vandinn við auðveldu leiðina er að hún er ekki endilega rétta leiðin og ýtir okkur yfir í það að hamast eins og hamstrar á hjóli sem slökkva elda í hverju horni.

Annar aðalfyrirlesari Viðskiptaþings, sem fram fer á morgun, Valerie G. Keller framkvæmdastjóri EY – Beacon Institute, hefur leitast við að finna þau tæki og tól sem við þurfum í þessu umhverfi. Til þess hefur hún helgað sig því starfi að aðstoða stofnanir og fyrirtæki við að finna hinn sanna tilgang með langtímahugsun að leiðarljósi. Sá tilgangur er ævinlega eitthvað æðra en einfaldur hagnaður samkvæmt gömlu og góðu skólabókunum.

Hinn aðalfyrirlesarinn, Paul Polman, sem er nýstiginn til hliðar sem forstjóri neysluvörurisans Unilever eftir 10 ára starf, hefur unnið eftir svipaðri nálgun og Valerie boðar. Á ferli sínum setti Paul langtímahugsun, umhverfismál og samfélagsábyrð í öndvegi svo tekið hefur verið eftir. Þessi breytta nálgun var þó ekki auðveld og mætti það nokkurri andstöðu þegar Unilever hætti að birta ársfjórðungsuppgjör til að einblína á langtímahugsun. Sú andstaða hefur þó að líkindum horfið með tímanum því markaðsvirði félagsins meira en tvöfaldaðist í hans valdatíð.Ef forstjóri stórfyrirtækis sem selur hversdagslegar vörur á við majónes, sturtusápur og pakkasúpur getur komið á þessari nálgun og náð þessum árangri, geta það allir.

Saga Unilever sýnir okkur að við þurfum fleiri áttavita til að halda kúrs í heimi óvissu og til að vera í sátt við samfélagið – gera réttu hlutina en ekki endilega þá auðveldu. Venju samkvæmt þarf að sýna ábyrgð í rekstri, skila góðu búi, og gera upplýstar áætlanir, en við sjáum sífellt betur að meira og annað þarf til að feta farsælan veg þegar skyggni er nánast ekkert. Þurfum við sterkari tilgang? Að lifa eftir staðreyndavitund? Á Viðskiptaþingi munum leitast við að finna hvaða áttavita við þurfum á þeirri leið.

Katrín Olga Jóhannesdóttir, formaður Viðskiptaráðs Íslands

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 13. febrúar 2018

Tengt efni

Lofts­lag eða lífs­kjör: bæði betra

Því hefur verið haldið fram að Viðskiptaráð sé á móti því að ráðist verði í …
25. september 2024

23 ár af skýrslum og starfshópum

Ekki er þörf á fleiri starfshópum eða skýrslum til að greina augljósa galla við …
4. september 2024

Eftirlitsmisskilningur Þórunnar

Viðskiptaráð leggur fram tíu tillögur sem lækka kostnað vegna eftirlits án þess …
31. ágúst 2024