Viðskiptaráð Íslands

Kosningaáttaviti Viðskiptaráðs: hvar standa framboðin í borginni?

Afstaða framboða til sveitarstjórnar í Reykjavíkurborg til lykilmála er misjöfn. Þetta kemur fram í nýjum kosningaáttavita Viðskiptaráðs sem kom út í dag vegna komandi sveitarstjórnarkosninga. Áttavitinn varpar ljósi á stefnu stjórnmálaframboða út frá tveimur þáttum: efnahagslegu frelsi og skýrleika stefnu. Myndrænt lítur niðurstaðan svona út:

Til að kortleggja stefnu framboðanna sendi Viðskiptaráð spurningakönnun til allra framboða til sveitarstjórnar í Reykjavíkurborg.  Könnunin innihélt þrjátíu fullyrðingar. Fimm svarmöguleikar voru við hverri fullyrðingu; mjög fylgjandi, frekar fylgjandi, hlutlaus, frekar andvíg og mjög andvíg. Jafnframt gafst framboðunum færi á að láta skýringu fylgja hverju svari.

Fyrir hverja fullyrðingu fengu framboðin svo einkunn á bilinu -1 til +1 stig, út frá því hvort afstaðan auki eða dragi úr efnahagslegu frelsi. Þannig var hægt að fá stig á bilinu -30 til +30 á þann mælikvarða. Heildarstigafjöldi ræður því hvar flokkarnir raðast á lárétta ásinn, sem mælir efnahagslegt frelsi.

Skýrleiki stefnu flokkanna var síðan metinn út frá því hversu skýra afstöðu þeir tóku gagnvart þeim fullyrðingum sem fyrir þá voru lagðir. Stigin gátu verið frá 0 og upp í 30; 0 stig ef framboðið var alveg hlutlaust og 30 stig ef það tók afdráttarlausa afstöðu gagnvart öllum fullyrðingum.

Ólík afstaða til málefna

Á eftirfarandi myndum má sjá afstöðu framboðanna í sex málaflokkum, en þeir eru skattar og gjöld, menntamál, húsnæðismál, stjórnsýsla Reykjavíkur, samgöngur og einkarekstur.

---

Ítarefni

Kosningaáttavitinn - svör og útreikningar (Excel-skjal).xlsx

---

Breytingar

Uppfært 29. apríl kl. 15. Svör frá Flokki fólksins uppfærð að ósk fulltrúa framboðsins.

Tengt efni

Hvar slær hjarta kjósenda?

Af svörum þátttakenda að dæma er augljóst ákall um aðhald í skatta- og gjaldahækkunum, áherslubreytingar í menntamálum og niðurskurð í efstu lögum …
15. maí 2026

Kosningapróf Viðskiptaráðs: hvar stendur þú?

Viðskiptaráð hefur gefið út kosningapróf þar sem kjósendur geta séð hvaða framboði í Reykjavíkurborg þeir standa næst í lykilmálum og verkefnum …
30. apríl 2026

Tölustafaeinkunnir, samræmd próf og fækkun borgarfulltrúa meðal vinsælustu mála

Hógvær hækkun gjalda, aukin áhersla á grunnfög, tryggt aðgengi að bílastæðum og samræmt námsmat við lok grunnskólagöngu eru þau mál sem njóta mests …
11. maí 2026

Upptaka af Kosningafundi Viðskiptaráðs í Iðnó

Kosningafundur Viðskiptaráðs fór fram í Iðnó 29. apríl 2026 með oddvitum flokkana í Reykjavík. Pallborðsumræðum var skipt upp í tvo hluta. Fyrst voru …
30. apríl 2026

Kosningafundur Viðskiptaráðs

Viðskiptaráð fær til sín oddvita flokkana í Reykjavík í umræður í aðdraganda borgarstjórnarkosninga á Kosningafund Viðskiptaráðs. Fundurinn verður …
29. apríl 2026

Kosningaáttavitinn: afstaða framboða misjöfn

Afstaða stjórnmálaflokkanna til efnahagsmála er misjöfn. Þetta kemur fram í nýjum kosningaáttavita Viðskiptaráðs, sem kom út í dag vegna komandi …
14. nóvember 2024