Viðskiptaráð Íslands

Tölustafaeinkunnir, samræmd próf og fækkun borgarfulltrúa meðal vinsælustu mála

Hógvær hækkun gjalda, aukin áhersla á grunnfög, tryggt aðgengi að bílastæðum og samræmt námsmat við lok grunnskólagöngu eru þau mál sem njóta mests stuðnings þátttakenda í kosningaprófi Viðskiptaráðs fyrir sveitastjórnarkosningar. Yfir 7.000 manns hafa nú tekið kosningaprófið, þar sem afstaða er könnuð til 30 fjölbreyttra málefna.

Tíu vinsælustu málin

Flestir eru fylgjandi því að borgin hækki ekki gjaldskrár umfram verðbólgumarkmið og fasteignagjöld umfram verðlagsþróun. Sé miðað við kosningaáttavita Viðskiptaráðs, þar sem framboð í borginni voru spurð um afstöðu þeirra til sömu mála, eru öll framboð nema eitt fylgjandi hógværum hækkunum.

Þegar kemur að menntamálum eru flestir fylgjandi því að auka áherslu á grunnfög í grunnskóla, líkt og lestur, stærðfræði og íslensku. Einnig voru flestir fylgjandi endurupptöku einkunna í tölustöfum auk innleiðingar samræmda prófa við lok grunnskólagöngu.

Fækkun borgarfulltrúa úr 23 í 15 naut vinsælda auk þess að afnema ætti 70% laun fyrstu varaborgarfulltrúa allra flokka.

Umferðargjöld óvinsælust

Önnur mál nutu hins vegar dræmari stuðnings meðal þátttakenda. Þar sker sig sérstaklega úr spurning um upptöku umferðargjalda á háannartímum, en 67% voru andvíg því á meðan 18% voru fylgjandi. Sala á hlut í Orkuveitu Reykjavíkur var einnig óvinsæl en um 59% þátttakenda lýstu sig andvíga sölunni.

Stuðningur við meirihluta mála

Heilt yfir sýna niðurstöður kosningaprófsins að meirihluti þátttakenda er fylgjandi tugum góðra mála sem eru til þess fallin að auka hagsæld í borginni. Vert er að taka fram að svör þátttakenda í kosningaprófinu þurfa ekki að endurspegla afstöðu allra kjósenda, einnig er ekki hægt að ganga úr skugga um að aðeins íbúar Reykjavíkurborgar hafi svarað könnununi. Engu að síður gefa niðurstöðurnar vísbendingu um afstöðu kjósenda til þessara mála.

Niðurstöður kosningaprófsins í heild sinni eru nú öllum aðgengilegar á vef Viðskiptaráðs, vi.is.

--

Kosningapróf Viðskiptaráðs 2026 - niðurstöður (Excel-skjal)

Tengt efni

Hvar slær hjarta kjósenda?

Af svörum þátttakenda að dæma er augljóst ákall um aðhald í skatta- og gjaldahækkunum, áherslubreytingar í menntamálum og niðurskurð í efstu lögum …
15. maí 2026

Kosningapróf Viðskiptaráðs: hvar stendur þú?

Viðskiptaráð hefur gefið út kosningapróf þar sem kjósendur geta séð hvaða framboði í Reykjavíkurborg þeir standa næst í lykilmálum og verkefnum …
30. apríl 2026

Kosningaáttaviti Viðskiptaráðs: hvar standa framboðin í borginni?

Afstaða framboða til sveitarstjórnar í Reykjavíkurborg til lykilmála er misjöfn. Þetta kemur fram í nýjum kosningaáttavita Viðskiptaráðs sem kom út í …
29. apríl 2026

79% fylgjandi samræmdum prófum

Vegna ummæla forstjóra Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu (MMS) um að „fámennum hópi standi stuggur að þeim breytingum sem hafa verið boðaðar“ á …
1. apríl 2025

Afnám stimpilgjalds, virkjanir, bensínbílar og samræmt námsmat efst á óskalista kjósenda

Yfir 10.000 manns hafa tekið kosningapróf Viðskiptaráðs. Afnám stimpilgjalds við fasteignakaup, aukin orkuöflun, áframhaldandi innflutningur …
26. nóvember 2024
María Guðjónsdóttir, lögfræðingur Viðskiptaráðs

Látum ekki fáa hindra framfarir

Afstaða stjórnmálaflokka til efnahagsmála í kosningaáttavita Viðskiptaráðs gefur tilefni til bjartsýni varðandi nokkur þjóðþrifamál sem mikill …
21. nóvember 2024