Viðskiptaráð Íslands

Viðskiptaráð birtir heilbrigðisvísitölu atvinnulífsins

2013.11.6 Heilbrigdisvisitala 1Meðal þess sem Viðskiptaráð hefur lagt áherslu á undanfarin ár er mikilvægi þess að skapaðar verði sterkari forsendur fyrir sjálfbærri verðmætasköpun innan einkageirans. Nú þegar eru birtir ýmsir hagvísar sem gefa vísbendingar um þróun mála hvað þetta markmið varðar, en þeir takmarkast við afmarkaða þætti efnahagslífsins og gefa því ekki nægjanlega skýra heildarmynd.

Einföld mynd af getu atvinnulífsins til verðmætasköpunar
Með þetta til hliðsjónar hefur Viðskiptaráð Íslands tekið saman heilbrigðisvísitölu atvinnulífsins, en henni er ætlað að skapa aðgengilegt og einfalt yfirlit um getu atvinnulífsins til aukinnar verðmætasköpunar. Samsetning vísitölunnar byggir á helstu drifkröftum verðmætasköpunar og þar með þeim þáttum sem skapa forsendur fyrir sjálfbærum hagvexti.

Vísitölunni er skipt í sex undirvísitölur; fjárfestingarumhverfi, framleiðnigetu, innra jafnvægi, ytra jafnvægi, áhrif opinberra umsvifa og gæði mannauðs. Þannig má sjá hvaða áhrif ólíkir drifkraftar hafa haft á heildargetu atvinnulífsins til verðmætasköpunar. Þróun undirvísitalnanna gefur sterkar vísbendingar til stjórnvalda um hvar helstu tækifæri til efnahagsumbóta liggja og hvort efnhagsaðgerðir séu að skila tilætluðum árangri.

Tekin var saman þróun vísitölunnar frá árinu 2003, en á því ári ríkti nokkuð gott jafnvægi innan hagkerfisins. Af þeim sex undirvísitölum sem heilbrigðisvísitalan tekur til standa einungis tvær þeirra sterkari en við upphafsár vísitölunnar; framleiðnigeta atvinnulífsins og gæði mannauðs. Aðrar undirvísitölur hafa þróast til verri vegar, einkum og sér í lagi fjárfestingarumhverfið.

Í meðfylgjandi glærukynningu er fjallað nánar um tilgang og samsetningu vísitölunnar, þróun hennar undanfarinn áratug og helstu ályktanir sem draga má af niðurstöðunum. Ennfremur er tekin saman spá um þróun vísitölunnar næsta árið og fjallað um samband vísitölunnar og hagvaxtar.

Framlag til stefnumótunar í efnahagsmálum
Þess ber að geta að vísitalan er ekki hönnuð sem spálíkan og því ekki hugsuð sem sérstakt framlag til spágerðar. Hún gefur engu að síður sterkar vísbendingar um getu atvinnulífs til sjálfbærrar verðmætasköpunar sem er grundvöllur hagvaxtar. Með það til hliðsjónar er það von Viðskiptaráðs að birting vísitölunnar muni gagnast sem framlag í mótun heildstæðrar og árangursríkrar langtímaefnahagsstefnu.

Samantekt um heilbrigðisvísitölu atvinnulífsins má nálgast hér.

Fjölmiðlahorn Viðskiptaráðs er hér.

2013.11.6 Heilbrigdisvisitala 2

Tengt efni

Icelandic Economy 2023

Viðskiptaráð hefur ársfjórðungslega gefið út skýrsluna The Icelandic Economy, skýrsurnar eru á ensku og fjallar um íslenskt efnahagslíf í víðu samhengi.
31. desember 2023

Burðugt atvinnulíf - betri kjör

Hagstofan hefur nú birt tölur yfir gjaldþrot fyrirtækja á síðasta ári og staðfest þar með grun margra um að endurskipulagningarferlið er of skammt á …

Ágæt skil ársreikninga - en gera verður betur

Viðskiptaráð hefur síðustu ár hvatt fyrirtæki til að skila inn ársreikningum innan lögbundinna tímamarka, en talsverð vanhöld hafa verið á því í …
4. október 2010

Hvað er til skiptanna? 10 atriði um rekstur á Íslandi

Viðskiptaráð Íslands hefur töluverðar áhyggjur af því að ekki ríki sameiginlegur skilningur um þær forsendur sem yfirstandandi kjaraviðræður eiga að …
14. nóvember 2018

Nýjar glærur um stöðu efnahagsmála á Íslandi

Viðskiptaráð hefur staðið fyrir útgáfu skýrslu á ensku um stöðu og þróun efnahags- og stjórnmála hérlendis frá haustinu 2008. Miklar breytingar hafa …
27. júní 2011

Nýjar glærur um stöðu efnahagsmála á Íslandi

Viðskiptaráð hefur staðið fyrir útgáfu skýrslu á ensku um stöðu og þróun efnahags- og stjórnmála hérlendis frá haustinu 2008. Miklar breytingar hafa …
27. júní 2011