Viðskiptaráð Íslands

Leiðbeiningar um stjórnarhætti á ensku

Leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja sem gefnar voru út í mars á þessu ári eru nú komnar út í enskri þýðingu. Viðskiptaráð hefur unnið leiðbeiningarnar í samstarfi við Nasdaq OMX Iceland og Samtök atvinnulífsins, en þær komu fyrst út árið 2004 og endurskoðuð útgáfa ári síðar. Þriðja útgáfa leiðbeininganna var gefin út árið 2009 og tóku þær þá talsverðum breytingum, en hér er því um fjórðu útgáfu þeirra að ræða.

Markmið leiðbeininganna er að bæta stjórnarhætti með því að skýra hlutverk og ábyrgð stjórnenda fyrirtækja, auðvelda þeim þannig að rækja störf sín og um leið treysta hag helstu hagsmunaaðila fyrirtækja. Leiðbeiningunum er ætlað að sýna vilja viðskiptalífsins í verki til að mæta þeirri ábyrgð sem á því hvílir og frumkvæði þess við að taka upp viðmið sem styrkja innviði fyrirtækja og efla traust almennt gagnvart viðskiptalífinu. Ensk útgáfa þeirra gagnast sérstaklega íslenskum fyrirtækjum með erlenda stjórnarmenn í sínum stjórnum.

Tengt efni

Leiðbeiningar um stjórnarhætti á ensku

Leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja sem gefnar voru út í mars á þessu ári eru nú komnar út í enskri þýðingu. Viðskiptaráð hefur unnið …
13. desember 2012

The Icelandic Economy – 4F 2023

Viðskiptaráð Íslands hefur birt nýja ársfjórðungslega útgáfu af The Icelandic Economy. Skýrslan er á ensku og fjallar um íslenskt efnahagslíf í víðu …
2. nóvember 2023

Nýjar leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja

Út er komin ný útgáfa leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja, en að henni standa Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og NASDAQ OMX Iceland. …
8. mars 2012

Nýjar leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja

Nýjar leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja hafa verið gefnar út í fimmta skipti á Íslandi. Útgáfuaðilar eru líkt og áður Viðskiptaráð Íslands, …
26. maí 2015

Corporate Governance Guidelines

Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq Iceland hafa nú gefið út fimmtu útgáfu Corporate Governance Guidelines en um er að ræða enska …
25. júní 2015

Stjórnarhættir fyrirtækja: leiðbeiningar

Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq Iceland hafa nú gefið út fimmtu útgáfu Leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja.
26. maí 2015