Viðskiptaráð Íslands

Corporate Governance Guidelines

Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq Iceland hafa nú gefið út fimmtu útgáfu Corporate Governance Guidelines en um er að ræða enska útgáfu leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja.

Sækja Corporate Governance Guidelines

Nýr vefur með rafrænni útgáfu

Samhliða enskri útgáfu leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja opnaði nýr vefur sem er tileinkaður leiðbeiningunum. Þar má nálgast rafræna útgáfu af leiðbeiningunum, tæmandi lista yfir breytingar frá fyrri útgáfu og ítarefni tengt stjórnarháttum. Rafræn útgáfa leiðbeininganna er gagnvirk og aðlagar sig að tölvum og snjalltækjum af ólíkum stærðum og gerðum.

Um breytingar í nýrri útgáfu

Talsverðar breytingar hafa verið gerðar á leiðbeiningunum frá fjórðu útgáfu þeirra. Í endurskoðunarferlinu var lögð áhersla á að gera leiðbeiningarnar skýrari og notendavænni með almennum breytingum á formi, uppsetningu og orðalagi. Þá hefur verið bætt úr ýmsum ágöllum í takt við ábendingar frá notendum leiðbeininganna. Að lokum hafa tilmæli leiðbeininganna verið endurskoðuð með það að markmiði að þær henti íslensku atvinnulífi sem best en séu á sama tíma í samræmi við alþjóðlega staðla og þróun.

Sækja Corporate Governance Guidelines

Enska útgáfu leiðbeininganna má panta með því að senda tölvupóst og kostar eintakið 2.900 kr.

Tengt efni

Stjórnarhættir fyrirtækja: leiðbeiningar

Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq Iceland hafa nú gefið út fimmtu útgáfu Leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja.
26. maí 2015

Ensk útgáfa leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja

Leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja (e. Corporate Governance Guidelines) eru nú gefnar út á ensku í annað skipti á Íslandi. Útgáfuaðilar eru …
25. júní 2015

Nýjar leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja

Út er komin ný útgáfa leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja, en að henni standa Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og NASDAQ OMX Iceland. …
8. mars 2012

Ný útgáfa leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja

Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og NASDAQ OMX Iceland gáfu út í dag endurskoðaðar leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja. Í þessari 3. …
18. júní 2009

Nýjar leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja

Nýjar leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja hafa verið gefnar út í fimmta skipti á Íslandi. Útgáfuaðilar eru líkt og áður Viðskiptaráð Íslands, …
26. maí 2015

Leiðbeiningar um stjórnarhætti á ensku

Leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja sem gefnar voru út í mars á þessu ári eru nú komnar út í enskri þýðingu. Viðskiptaráð hefur unnið …
13. desember 2012