Viðskiptaráð Íslands

Meirihluti aðildarfélaga vill kasta krónunni

Á Viðskiptaþingi í dag voru kynntar niðurstöður könnunar sem gerð var meðal hátt í 300 aðildarfélaga Viðskiptaráðs Íslands. Til marks um áhuga félagsmanna á málefninu var svarhlutfall ríflega 70%, sem er óvenju hátt fyrir þetta form könnunar. Það er afdráttarlaus skoðun aðildarfélaga að evran komi helst til greina ef íslensk stjórnvöld ákveða að taka upp annan opinberan gjaldmiðil. Þrátt fyrir það er ríflega helmingur félaga andvígur umsókn um aðild að Evrópusambandinu en einungis þriðjungur félaga er fylgjandi henni. Fleiri aðildarfélög eru andvíg en hlynnt núverandi fyrirkomulagi gjaldeyris- og peningamála og almennt líta þau svo á fjármálastjórn hins opinbera hafi verið óábyrg og að þar sé frekar að leita skýringa á núverandi stöðu en í hagstjórn Seðlabanka Íslands.

Athyglivert er að áherslur hins opinbera hvað varðar forgangsröðun verkefna eru töluvert á skjön við áherslur viðskiptalífsins. Að mati aðildarfélaga eru mikilvægustu verkefni stjórnvalda að halda verðbólgu í skefjum og hagvexti stöðugum, en hvort tveggja setja þeir framar í forgangsröðuninni en að tryggja lágt vaxtastig, draga úr gengissveiflum og lágmarka atvinnuleysi. Það er von Viðskiptaráðs Íslands að niðurstöður þessarar könnunar og efni skýrslu Viðskiptaþings 2008, „Íslenska krónan: Byrði eða blóraböggull?“ reynist lóð á vogarskálar skjótrar og upplýstrar ákvörðunartöku um eitt stærsta hagmunamál sem íslenska þjóðin hefur staðið frammi fyrir um langa hríð.

Skoðanakönnunina má nálgast hér

Tengt efni

Einhugur um aðild að ESB

Fulltrúar viðskiptalífsins voru einhuga í afstöðu sinni til Evrópusambandsins í pallborðsumræðum á Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs, sem fór fram í dag á …
12. mars 2009

Krónan og kjörin

Meirihluti Íslendinga vill taka upp nýjan gjaldmiðil samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins í liðinni viku. Í tengslum við birtingu könnunarinnar lýstu …
26. nóvember 2015

88% sænskra fyrirtækja hlynnt evrunni

88% aðildarfyrirtækja verslunarráðs Stokkhólmsborgar eru hlynnt upptöku evrunnar í Svíþjóð. Þetta kom m.a. fram í ræðu Peters Eghards framkvæmdastjóra …
18. ágúst 2003

88% sænskra fyrirtækja hlynnt evrunni

88% aðildarfyrirtækja verslunarráðs Stokkhólmsborgar eru hlynnt upptöku evrunnar í Svíþjóð. Þetta kom m.a. fram í ræðu Peters Eghards framkvæmdastjóra …
18. ágúst 2003

Niðurstaða Viðhorfskönnunar Viðskiptaráðs

Í tilefni af Viðskiptaþingi sem halda átti 4. febrúar 2009 kannaði Viðskiptaráð hug aðildarfélaga til afleiðinga bankahrunsins á rekstrarstöðu …
3. febrúar 2009

Viðskiptaþing 2010: Könnun á viðhorfum forsvarsmanna fyrirtækja

Til umfjöllunar á Viðskiptaþingi 2010 verða meðal annars niðurstöður könnunar sem Capacent Gallup framkvæmdi fyrir Viðskiptaráð þar sem leitað var …
14. febrúar 2010