Viðskiptaráð Íslands

Stjórnarhættir opinberra fyrirtækja

Í dag gáfu Viðskiptaráð, Kauphöll Íslands og SA út leiðbeiningar um stjórnarhætti opinberra fyrirtækja. Meðal þeirra sem munu veita leiðbeiningunum formlega viðtöku eru Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra og fulltrúar ríkisbankanna þriggja.

Mikilvægi leiðbeininga um stjórnarhætti opinberra fyrirtækja er ótvírætt. Hið opinbera stendur iðulega frammi fyrir því vandasama verkefni að finna jafnvægi milli hlutverks síns sem eiganda annars vegar og hins vegar sem valdhafi til reglusetningar. Erfitt getur reynst að viðhalda þessu jafnvægi og hættan á pólitískum afskiptum af rekstri opinberra fyrirtækja er ávallt til staðar. Þar sem þessi hlutverk fara sjaldnast saman er mikilvægt að skapa trúverðugleika og traust um með hvaða hætti þeim er sinnt. Leiðbeiningum þessum er ætlað að auka gagnsæi í rekstri opinberra fyrirtækja og aðstoða þar með hið opinbera og fyrirtæki í eigu þess að skapa traust um starfsemi sína.

Leiðbeiningarnar má nálgast endurgjaldslaust hér eða á skrifstofu Viðskiptaráðs gegn vægu gjaldi. Haraldur I. Birgisson lögfræðingur Viðskiptaráðs veitir nánari upplýsingar í síma 510-7109.

Tengt efni

Fundur vegna útgáfu leiðbeininga um stjórnarhætti opinberra fyrirtækja

Viðskiptaráð Íslands boðaði til blaðamannafundar í hádeginu í dag í tilefni af útgáfu leiðbeininga um stjórnarhætti opinberra fyrirtækja. …
28. nóvember 2008

Ný útgáfa leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja

Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og NASDAQ OMX Iceland gáfu út í dag endurskoðaðar leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja. Í þessari 3. …
18. júní 2009

Leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja kynntar

Á fjölmennri ráðstefnu Verslunarráðs í gær voru nýútkomnar Leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja kynntar. Verslunarráð hefur komið upp á heimasíðu …
17. mars 2004

Vel heppnaður blaðamannafundur

Í dag kynntu Viðskiptaráð, Kauphöllin og Samtök atvinnulífsins aðra útgáfu af Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja. Þórður Friðjónsson formaður …

Stjórnarhættir fyrirtækja: leiðbeiningar

Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq Iceland hafa nú gefið út fimmtu útgáfu Leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja.
26. maí 2015

Hollráð um heilbrigða samkeppni gefin út

Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Lögmannafélag Íslands buðu til útgáfufundar í morgun þar sem leiðbeiningar í samkeppnisrétti voru …
24. apríl 2018