Ný útgáfa stjórnarháttaleiðbeininga verður kynnt á viðburði í Kauphöllinni 21. október 2026 kl. 16-18

7. útgáfa leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja verður gefin út þann 21. október næstkomandi. Af því tilefni efna útgáfuaðilar, Viðskiptaráð, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq Iceland, til útgáfuviðburðar í Kauphöllinni, Laugavegi 182 kl. 16:00.
Boðið verður upp á léttar veitingar og tengslamyndun að fundi loknum.
Viðburðurinn er opinn öllum en skráning nauðsynleg.