Viðskiptaráð Íslands

Ný útgáfa leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja

Ný útgáfa stjórnarháttaleiðbeininga verður kynnt á viðburði í Kauphöllinni 21. október 2026.

7. útgáfa leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja verður gefin út þann 21. október næstkomandi. Af því tilefni efna útgáfuaðilar, Viðskiptaráð, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq Iceland, til útgáfuviðburðar þann sama dag í Kauphöllinni, Laugavegi 182 kl. 16:00.

  • Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins opnar fundinn
  • Lísbet Sigurðardóttir lögfræðingur Viðskiptaráðs og verkefnastjóri útgáfunnar kynnir helstu breytingar á leiðbeiningunum
  • Marta Guðrún Blöndal lögmaður, stjórnarmaður og nefndarmaður í nefnd um stjórnarhætti flytur erindi
  • Pallborðsumræður: Heiðar Guðjónsson stjórnarformaður Íslandsbanka, Ólafur Sigurðsson framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs, Rut Gunnarsdóttir verkefnastjóri hjá KPMG og Þóranna Jónsdóttir formaður nefndar um stjórnarhætti. Baldur Thorlacius framkvæmdastjóri skráninga hjá Nasdaq Iceland stýrir umræðum.

Boðið verður upp á léttar veitingar og tengslamyndun að fundi loknum.

Viðburðurinn er opinn öllum en skráning fer fram hér.

Tengt efni

Skráðu þig á fund um samruna- og samkeppnismál á Íslandi

Viðskiptaráð kynnir nýja úttekt á samrunaeftirliti á Íslandi þriðjudaginn 14. október á Vinnustofu Kjarval, 2. hæð. Fundurinn hefst kl 16. …
2. október 2025

6. útgáfa leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja

Útgáfuviðburður vegna útgáfu uppfærðra leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja fer fram 2. febrúar kl. 09:00
1. febrúar 2021

Peningamálafundur Viðskiptaráðs 2023

Yfirskrift fundarins í ár er: Stenst hagstjórnin greiðslumat?
27. október 2023

Kynningarfundir - leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja

Viðskiptaráð, í samvinnu við Samtök atvinnulífsins og Nasdaq OMX Ísland, mun standa fyrir kynningarfundum í september á nýjum leiðbeiningum um …
4. september 2009

Fundur vegna útgáfu leiðbeininga um stjórnarhætti opinberra fyrirtækja

Viðskiptaráð Íslands boðaði til blaðamannafundar í hádeginu í dag í tilefni af útgáfu leiðbeininga um stjórnarhætti opinberra fyrirtækja. …
28. nóvember 2008

Kynningarfundir - leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja

Viðskiptaráð, í samvinnu við Samtök atvinnulífsins og Nasdaq OMX Ísland, mun standa fyrir kynningarfundum í september á nýjum leiðbeiningum um …
11. september 2009