Viðskiptaráð Íslands

Iceland's Advance - framrás Íslands á erlenda markaði

Aukning beinnar erlendrar fjárfestingar (FDI) hefur náð athygli erlendra fjármálamarkaða, sér í lagi í Danmörku og Bretlandi, þar sem íslensk fyrirtæki og einstaklingar hafa verið virk í fjárfestingum. Eðlilegt er að slík sókn leiði til þess að spurningar vakni og nauðsynlegt að halda uppi góðu upplýsingaflæði milli íslenskra fyrirtækja og ríkjanna sem þau eru starfrækt í. 

Sökum smæðar íslensks markaðar getur reynst nauðsynlegt fyrir fyrirtæki að leita á önnur mið, en staðan hér á landi er þó nokkuð sérstök. Framrás Íslands á erlenda markaði er ferli sem hefur átt sér stað síðustu áratugina og opnaði aðild að EES fyrir aðgang að nýjum mörkuðum. Menntunarstig á Íslandi hefur einnig haft áhrif á þróunina, en nú hafa skapast vænlegar aðstæður fyrir íslensk fyrirtæki að leita á ný mið og að beina sjónum í auknum mæli að alþjóðlegum viðskiptum.

Viðskiptaráð hefur gefið út skýrsluna Iceland's Advance og fjallar hún um alþjóðavæðinguna, nýlega þróun hjá nokkrum íslenskum fyrirtækjum og að lokum er útrás íslenskra fyrirtækja á árunum 2001 – 2006 kortlögð.

Skýrsluna má nálgast hér

Tengt efni

Icelandic Economy 2023

Viðskiptaráð hefur ársfjórðungslega gefið út skýrsluna The Icelandic Economy, skýrsurnar eru á ensku og fjallar um íslenskt efnahagslíf í víðu samhengi.
31. desember 2023

Nýtt upplýsingaskjal handa erlendum aðilum

Ljóst er að staða íslenskra efnahagsmála vekur athygli víða um heim. Fjölmargir erlendir aðilar hafa sett sig í samband við innlend fyrirtæki með …
24. október 2008

Samskipti við breska hagsmunaaðila

Hnökrar hafa verið á samskiptum íslenskra fyrirtækja við fyrirtæki í Bretlandi. Til að liðka fyrir samskiptum má nýta sér eftirfarandi gögn.
13. október 2008

Umfjöllun um íslensk fyrirtæki erlendis skapar tækifæri

Einn angi af alþjóðavæðingu íslenskrar útrásarstarfsemi er mikil umfjöllun um íslensk fyrirtæki í erlendum fjölmiðlum. Ekki er langt síðan að það …
6. apríl 2004

Umfjöllun um íslensk fyrirtæki erlendis skapar tækifæri

Einn angi af alþjóðavæðingu íslenskrar útrásarstarfsemi er mikil umfjöllun um íslensk fyrirtæki í erlendum fjölmiðlum. Ekki er langt síðan að það …
6. apríl 2004

Fjárfestingar erlendis

Töluvert hefur verið fjallað um erlendar fjárfestingar Íslendinga í framhaldi af birtingu bráðabirgðatalna Seðlabankans um fjárfestingar erlendis. …
18. júlí 2005