Viðskiptaráð Íslands

Fiskveiðistjórnunarfrumvörp

Stjórn fiskveiða á Íslandi mun ávallt hafa afgerandi áhrif á efnahagsumsvif og almenn lífskjör. Tvö frumvörp sjávarútvegsráðherra um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu og veiðigjaldi liggja nú fyrir, en við mat á þeim skiptir mestu að til grundvallar liggi samstaða um að viðhalda verðmætasköpun í undirstöðuatvinnugrein Íslendinga. 

Viðskiptaráð hefur skilað umsögn um bæði frumvörpin. Það er álit ráðsins að það þjóni ekki sameiginlegum hagsmunum sjávarútvegsins og þjóðarinnar að frumvörpin nái fram að ganga. Byggir það fyrst og fremst á viðamiklum athugasemdum fjölda sérfræðinga um hagræn áhrif fyrri frumvarpa og athugasemdum í greinargerð sérfræðinga ráðuneytisins við fyrirliggjandi frumvörp. Þá er ámælisvert að í frumvörpunum er ekki til staðar fullnægjandi úttekt sjávarútvegsráðuneytis á efnahagslegum áhrifum frumvarpanna, bæði fyrir atvinnugreinina og hagkerfið í heild. Slík vinnubrögð teljast ekki boðleg í þessu mikilvæga málefni. 

Viðskiptaráð tekur undir mikilvægi þess að þjóðin njóti arðs af auðlindum sínum en telur frumvörpin fela í sér óhóflega skattlagningu og breytingar sem eru til verulegs óhagræðis í greininni. Þannig yrðu breytingarnar til þess að rýra verðmætasköpun og koma þannig niður á almennum lífskjörum Íslendinga.

Umsögn Viðskiptaráðs við frumvörpin má nálgast hér.

Tengt efni:

Tengt efni

Fiskveiðistjórnunarfrumvörp

Stjórn fiskveiða á Íslandi mun ávallt hafa afgerandi áhrif á efnahagsumsvif og almenn lífskjör. Tvö frumvörp sjávarútvegsráðherra um breytingar á …
20. apríl 2012

Umsögn Viðskiptaráðs Íslands um sjávarútvegsstefnu og frumvarp til laga um sjávarútveg

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar ofangreind mál en ráðið hafði áður skilað inn umsögn við málið á fyrri stigum. Til hagræðis tekur umsögnin til …
17. janúar 2024

Áform um frumvarp til laga um nýtingu og stjórnun nytjastofna sjávar

Umsögn um Auðlindina okkar – sjálfbæran sjávarútveg (mál nr. 159/2023) og áform um frumvarp til laga um nýtingu og stjórnun nytjastofna sjávar - Mál …
29. september 2023

Hagkvæmni og verðmætasköpun í fyrirrúmi í sjávarútvegi

Hagkvæm og skynsamleg nýting náttúruauðlinda er einn af hornsteinum lífskjara á Íslandi og því er mikilvægt að vandað sé til verka.
22. október 2018

Breytt fiskveiðistjórnun - fortíðarþrá eða framtíðarhagkvæmni?

Fyrir skemmstu samþykkti Alþingi frumvarp sem fól í sér breytingar á núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi, en gert er ráð fyrir að annað frumvarp af …
23. júní 2011

Samstarf um verðmætasköpun og hagvöxt

Ísland stendur á tímamótum um þessar mundir og sú efnahagslega umgjörð sem nú eru lögð drög að verður arfleifð næstu kynslóða. Til að tryggja …
9. mars 2010