Viðskiptaráð Íslands

Bílastæðagjöld fýsilegt form gjaldtöku

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn til Alþingis vegna frumvarps um bílastæðagjöld. Með frumvarpinu er lagt til að sett verði gjaldtökuheimild í umferðarlög fyrir notkun bílastæða og þjónustu sem henni tengist. Gert er ráð fyrir að ráðherra útfæri gjaldtöku nánar í reglugerð í þeim tilvikum sem land er í umráðum ríkis. Sveitarstjórn útfærir gjaldtökuna þegar land er í þeirra umráðum.

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn til Alþingis vegna frumvarps um bílastæðagjöld. Með frumvarpinu er lagt til að sett verði gjaldtökuheimild í umferðarlög fyrir notkun bílastæða og þjónustu sem henni tengist. Gert er ráð fyrir að ráðherra útfæri gjaldtöku nánar í reglugerð í þeim tilvikum sem land er í umráðum ríkis. Sveitarstjórn útfærir gjaldtökuna þegar land er í þeirra umráðum.

Viðskiptaráð fagnar því að stjórnvöld láti sig þetta mál varða enda er ljóst að margar af náttúruperlum landsins liggja undir skemmdum ef ekki verður ráðist í breytingar á umgjörð ferðamannastaða á Íslandi.

Viðskiptaráð telur frumvarpið til mikilla bóta og hefur lengi talað fyrir því að gjaldtaka á ferðamannastöðum sé rétta leiðin til tekjuöflunar. Slík gjaldtaka aflar tekna fyrir uppbyggingu innviða, leggst með beinum hætti á notendur þjónustunnar, getur dregið úr átroðningi á vinsælustu áfangastaðina og skapar hvata fyrir aðila innan greinarinnar til að koma á fót nýjum áfangastöðum.

Bílastæðagjald fýsilegt form gjaldtökuÍ því frumvarpi sem nú er til umsagnar er lagt til að ríki og sveitarfélögum verði heimilt að taka gjald af þeim sem leggja bifreiðum sínum við ferðamannastaði. Að mati ráðsins eru bílastæðagjöld fýsilegt form gjaldtöku, þau leggjast beint á þá sem á staðina sækja og hafa takmörkuð neikvæð áhrif á upplifun gesta af ferðamannastaðnum. Þá er sambærilegt gjald alþekkt víða um heim.

Ýmsir aðilar hafa mælt fyrir um kost bílastæðagjalda sem form gjaldtöku. Bílastæðagjöld voru t.d. ein af fimm tillögum að bættum umhverfis og auðlindagjöldum sem sjálfstæð verkefnisstjórn samráðsvettvangs um aukna hagsæld skilaði af sér. Einnig voru bílastæðagjöld lögð til sem leið til að sinna betur ferðamannastöðum í skýrslu starfshóps um auknar tekjur sveitarfélaga af ferðamönnum.

Hætta er á að náttúruperlur Íslands liggi undir skemmdum ef ekki verður ráðist í breytingar á umgjörð ferðamannastaða hérlendis. Viðskiptaráð telur fyrirliggjandi frumvarp skref í rétta átt að aukinni sjálfbærni í ferðamennsku á Íslandi og til þess fallið að styðja við áframhaldandi uppbyggingu innan atvinnugreinarinnar.

Þessi grein birtist upphaflega á Medium.

Tengt efni

Veggjöld á eldri mannvirki óforsvaranleg

Viðskiptaráð telur hugmyndina um innviðafélag geta falið í sér framför ef rétt er á málum haldið, en telur frumvarpið í núverandi mynd ófullkomið. …
16. apríl 2026

Fiskeldi fái svigrúm til að komast á legg

Viðskiptaráð fagnar því að stefnt sé að setningu heildstæðrar löggjafar um lagareldi. Ráðið telur mikilvægt að samræma regluverkið til að auka …
16. apríl 2026

Stofnun atvinnuveganna leiði ekki til aukinna umsvifa

Viðskiptaráð styður markmið frumvarpsins um að sameina þrjár stofnanir í eina til að auka skilvirkni og bregðast við athugasemdum Eftirlitsstofnunar …
16. apríl 2026

Hagræðingarkrafa og útvistun fylgi sameiningu stofnana

Hagræðingarkrafa ætti að fylgja fyrirhugaðri sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs auk þess sem framkvæmd eftirlits …
23. febrúar 2026

Tryggja þarf að kílómetragjald leiði ekki til óhóflegrar skattheimtu

Viðskiptaráð styður markmið stjórnvalda um sjálfbært og sanngjarnt kerfi gjaldtöku í frumvarpi til laga um kílómetragjald. Ráðið leggur áherslu á að …
28. október 2025

Kílómetragjald og hækkun kolefnisgjalds framundan

Fjármála- og efnhagsráðherra hefur lagt fram frumvarp til laga um kílómetragjald sem lið í innleiðingu nýs kerfis sem á að tryggja sjálfbæra …
20. mars 2025