Viðskiptaráð Íslands

Veggjöld á eldri mannvirki óforsvaranleg

Viðskiptaráð telur hugmyndina um innviðafélag geta falið í sér framför ef rétt er á málum haldið, en telur frumvarpið í núverandi mynd ófullkomið. Ráðið kallar eftir því að dregið verði úr álögum á skattgreiðendur og að rekstrarumhverfi félagsins verði hannað með skýrari hætti áður en það verður að lögum.

Viðskiptaráð hefur skilað umsögn um frumvarp til laga um stofnun innviðafélags. Með frumvarpinu er lagt til hlutverk innviðafélags verði að halda utan um fjármögnun og uppbyggingu tiltekinna samgöngumannvirkja. Tilgangur félagsins er að koma á nýju skipulagi við fjármögnun stórra samgönguframkvæmda og hraða uppbyggingu þeirra með innheimtu veggjalda.

Ráðið hefur um árabil kallað eftir því að horft verði til fjölbreyttari fjármögnunarleiða opinberra framkvæmda og talað fyrir svokallaðri „samvinnuleið“ einkaaðila og hins opinbera (e. „PPP“ - public-private partnership). Hefur ráðið bent á að þannig megi leysa úr læðingi krafta einkaframtaks og bæta um leið nýtingu opinberra fjármuna.

Vísbendingar eru um að verulegir annmarkar séu á kostnaðaráætlunum opinberra innviðaframkvæmda hér á landi. Rannsóknir hafa sýnt fram á að allt að 90% slíkra verkefna fari fram úr upphaflegum áætlunum og að meðalframúrkeyrsla sé umtalsverð. Í ljósi þessa er brýnt að leita leiða til að bæta skilvirkni og aðhald, meðal annars með aukinni aðkomu einkaaðila þar sem það á við. Auk þess er aðkoma einkaaðila að uppbyggingu vegaframkvæmda til þess fallin að auka áhættudreifingu, skilvirkni og svigrúm ríkisins til að sinna grunnþjónustu og stöðugra viðhaldi. Í frumvarpinu ætti að stefna að enn frekari aukningu slíkra samvinnuframkvæmda en gert er í fyrirliggjandi frumvarpi, en örðugt er að sjá að sú leið sé sérstakt áhersluatriði stjórnvalda af lesningu frumvarpsins.

Sjálfstæði innviðafélags verði tryggt

Að mati Viðskiptaráðs er ánægjulegt að fallið hafi verið frá áformum um 100% eignarhald ríkisins hinu áformaða félagi. Hefur þannig verið bætt við ákvæði um heimild ráðherra til að auka við hlutafé félagsins og selja til almennra fjárfesta, skv. 3. mgr. 4 gr. frumvarpsins, þó áfram sé gerð krafa um að ríkið fari með ráðandi hlut í félaginu.

Viðskiptaráð varar þó við þeirri nálgun að arðbær verkefni verði látin standa undir kostnaði við óarðbær verkefni og hvetur til þess að gerðar verði frekari ráðstafanir til að tryggja ákvarðanatöku á viðskiptalegum grunni. Standi vilji stjórnvalda til þess að láta félagið taka að sér óarðbær verkefni þyrfti að útfæra slíkt með sérstöku framlagi sem gerir verkefnið arðbært fyrir innviðafélagið. Að öðrum kosti fær Viðskiptaráð ekki séð að fyrirætlanir um að fá fjárfesta að borðinu með fjármagn á síðari stigum séu raunhæfar.

Veggjöld á þegar byggð samgöngumannvirki óforsvaranleg

Viðskiptaráð gerir verulegar athugasemdir fyrirhugaða útfærslu upptöku gjalda fyrir notkun á þegar byggðum samgöngumannvirkjum. Tekjustofnar innviðafélagsins verða einkum gjaldtaka af samgöngumannvirkjum og eftir atvikum fjárframlög úr ríkissjóði vegna einstakra verkefna, en í 2. mgr. 4. gr. frumvarpsins kemur fram að ráðherra sé heimilt að færa yfir til félagsins eignarhald á þegar byggðum samgöngumannvirkjum í formi hlutafjár. Í athugasemdum greinargerðar við 4. gr. frumvarpsins kemur fram að einkum sé átt við tekjuberandi mannvirki sem þegar hafa verið byggð fyrir tilstuðlan ríkisins eða eru í byggingu, til að mynda Hvalfjarðargöng og Ölfusárbrú. Í greinargerðinni er sá möguleiki einnig nefndur að félaginu yrðu lögð til fleiri þegar byggð mannvirki, til að mynda Reykjanesbraut og Suðurlandsvegur, með þeim rökum að með slíkum aðgerðum væri innheimta veggjalda á öllum helstu leiðum til og frá höfuðborgarsvæðinu.

Að mati ráðsins felur gjaldtaka af þegar byggðum samgöngumannvirkjum í sér endurtekna og ógagnsæja skattlagningu. Í frumvarpinu er t.a.m. engin trygging fyrir því að hugsanleg veggjöld af umferð um Hvalfjarðargöng fari nokkurn tímann í framkvæmdir við breikkun ganganna.

Þörf á heildstæðri endurskoðun á gjaldheimtu

Viðskiptaráð er ekki andsnúið veggjöldum í tilfelli nýrra framkvæmda og telur það sanngjarna leið til að tryggja skilvirkari uppbyggingu samgönguinnviða um landið. Þrátt fyrir það gerir Viðskiptaráð athugasemd við fyrirætlanir um upptöku veggjalda án þess að til komi lækkun á öðrum sköttum á móti, svo sem kílómetragjaldi eða vörugjöldum á bifreiðar.

Með frumvarpinu er þess í stað lagður til nýr skattur á bifreiðaeigendur án þess að fyrirkomulag gjaldheimtu innviðaframkvæmda sé endurskoðað með heildstæðum hætti. Einnig þarf að skýra samspil hins áformaða innviðafélags og annarra opinberra aðila í samgöngukerfinu. Ef ný samgönguverkefni færast að öllu leyti til hins nýja félags ættu að felast í því augljós tækifæri til að lækka rekstrarframlög til annarra aðila.

Viðskiptaráð áréttar að áform stjórnvalda um að setja aukinn kraft í uppbyggingu samgönguinnviða með því að setja á fót sérstakt félag um samgönguframkvæmdir geta falið í sér framför ef rétt er á málum haldið. Aftur á móti geldur ráðið varhug við þeirri útfærslu sem lögð er til í frumvarpinu og felur m.a. í sér auknar álögur á skattgreiðendur án nægilegs heildstæðs efnahagslegs mats á áhrifum og samhengi við aðra gjaldtöku innan vegakerfisins.

Viðskiptaráð telur rétt að ofangreind atriði verði útfærð með nánari hætti áður en málið verður tekið til frekari þinglegrar meðferðar.

Tengt efni

Stofnun atvinnuveganna leiði ekki til aukinna umsvifa

Viðskiptaráð styður markmið frumvarpsins um að sameina þrjár stofnanir í eina til að auka skilvirkni og bregðast við athugasemdum Eftirlitsstofnunar …
16. apríl 2026

Fiskeldi fái svigrúm til að komast á legg

Viðskiptaráð fagnar því að stefnt sé að setningu heildstæðrar löggjafar um lagareldi. Ráðið telur mikilvægt að samræma regluverkið til að auka …
16. apríl 2026

Tugmilljarða kostnaður vegna úreltrar uppsagnarverndar

Viðskiptaráð styður afnám áminningarskyldu ríkisstarfsmanna og telur breytinguna nauðsynlega til að samræma reglur á opinberum og almennum …
15. apríl 2026

Smærri félögum veittur rýmri frestur

Viðskiptaráð styður frumvarpið og hvetur til þess að það nái fram að ganga. Þá fagnar ráðið því að stærðarmörk fyrirtækja séu hækkuð í samræmi við …
9. apríl 2026

Auknar byrðar lagðar á lyfjafyrirtæki umfram tilefni

Viðskiptaráð telur að frumvarp heilbrigðisráðherra um viðbrögð við lyfjaskorti leggi óhóflegar kvaðir á fyrirtæki og feli í sér víðtækari …
9. apríl 2026

Brýnt að liðka fyrir raforkuframleiðslu

Viðskiptaráð hefur um árabil kallað eftir aðgerðum til einföldunar regluverks og flýtingu uppbyggingar raforkuinnviða og styður áform stjórnvalda í þá …
31. mars 2026