Viðskiptaráð Íslands

Breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis vegna frumvarps til laga um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki. Með frumvarpinu er stefnt að því að aðlaga íslenska löggjöf á sviði fjármálamarkaða að Basel III staðlinum og nýju regluverki Evrópusambandsins.

Í umsögninni kemur m.a. eftirfarandi fram:

  • Innleiðing reglna með meira íþyngjandi hætti en nauðsynlegt er hefur slæm áhrif á íslenskt efnahagslíf og er til þess fallin að skerða samkeppnishæfni íslenskra fjármálafyrirtækja og hækka fjármagnskostnað einstaklinga og fyrirtækja hér á landi.
  • Mikilvægt er að aðlögunarfrestur nýrra reglna verði nægjanlega rúmur, en fyrirtæki þurfa svigrúm til að aðlaga starfsemi sína til þess að neikvæð áhrif breytinga á rekstur þeirra verði takmörkuð.
  • Ráðið telur heimild Fjármálaeftirlitsins til að veita undanþágur til þess fallna að draga úr gagnsæi um framkvæmd laganna og hefur einnig í för með sér aukna óvissu og umsýslukostnað.
  • Hámark á hlutfall breytilegra starfskjara er of lágt að mati ráðsins og verði frumvarpið að lögum mun fastur kostnaður fjármálafyrirtækja hækka.

Umsögnina má í heild sinni nálgast hér

Tengt efni

Umsögn um frumvarp til laga um breytingar á stjórnsýslulögum

Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins og Viðskiptaráð Íslands (samtökin) hafa skilað inn umsögn og koma á framfæri athugasemdum um breytingar á …
27. mars 2024

Umsögn um frumvarp til breytinga á lögum um fyrirtækjaskrá

Umsögn um frumvarp til breytinga á lögum um fyrirtækjaskrá o.fl. lögum. Mál nr. 627. á 154. löggjafarþingi.
23. febrúar 2024

Umsögn um frumvarp til breytinga á raforkulögum

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar ofangreint frumvarp um raforkuviðskipti (Mál nr. S-61/2024) en með því er einkum lagt til að tilteknar …
8. mars 2024

Umsögn um frumvarp til breytinga á lögum um Seðlabanka Íslands

Umsögn Viðskiptaráðs um frumvarp til breytinga á lögum um Seðlabanka Íslands (rekstraröryggi greiðslumiðlunar). Mál nr. 662 á 154. löggjafarþingi.
23. febrúar 2024

Umsögn um áform um gerð lagafrumvarps til breytinga á lögum um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir

Umsögn Viðskiptaráðs um áform um gerð lagafrumvarps til breytinga á lögum nr. 96/2023 um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (ETS2-kerfið)
14. febrúar 2024

Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um endurskoðendur

Umsögn Viðskiptaráðs Íslands um frumvarp til laga um breytingu á lögum um endurskoðendur og endurskoðun og lögum um ársreikninga ársreikninga …
12. október 2023