Viðskiptaráð Íslands

Auka ætti frelsi í ráðstöfun útvarpsgjalds

Viðskiptaráðs styður að neytendum verði veitt aukið frelsi til að ráðstafa útvarpsgjaldinu með þeim hætti sem þeir kjósa. Ganga mætti enn lengra og veita fólki frelsi til að ráðstafa öllu gjaldinu til annarra fjölmiðla ef það svo kýs. Samkeppnisstaða á fjölmiðlamarkaði er skökk, sem hefur leitt til þess að veruleg fækkun hefur orðið meðal starfandi á fjölmiðlamarkaði.

Viðskiptaráð hefur veitt umsögn um tillögu til þingsályktunar um ráðstöfun úrvarpsgjalds. Ráðið fagnar viðleitni til að leiðrétta þá skökku samkeppnisstöðu sem ríkir á fjölmiðlamarkaði.

Ráðið er ekki fylgjandi því að neytendur séu neyddir til að greiða útvarpsgjald til að vera í áskrift að ákveðnum fjölmiðlum og vill að útvarpsgjaldið verði afnumið. En þar sem afnám útvarpsgjalds er ekki á dagskrá styður ráðið að neytendum verði veitt aukið frelsi til að ráðstafa útvarpsgjaldinu með þeim hætti sem þeir kjósa. Að mati ráðsins mætti ganga enn lengra en hér er lagt til og veita fólki frelsi til að ráðstafa öllu gjaldinu til annarra fjölmiðla ef það svo kýs.

Þörf á að leiðrétta skakka stöðu

Samkeppnisstaða á fjölmiðlamarkaði er skökk, sem hefur leitt til þess að veruleg fækkun hefur orðið meðal starfandi á fjölmiðlamarkaði. Á árunum 2008 til 2023 fækkaði starfandi hjá einkareknum miðlum um 69%. Á sama tíma hefur starfandi hjá Ríkisútvarpinu aðeins fækkað um 16%. Umfang einkarekinna miðla hefur því dregist saman, hvort sem horft er til fjölda starfandi eða í samanburði við RÚV.[1]

Á Íslandi eru umsvif ríkisfjölmiðilsins þau mestu á Norðurlöndum. Af heildartekjum fjölmiðla hefur RÚV 27% tekna á íslenskum fjölmiðlamarkaði, en hlutfallið er að jafnaði 10% á öðrum Norðurlöndum. Þá er RÚV eini norræni ríkismiðillinn sem fjármagnaður er með opinberum framlögum og er samtímis í virkri samkeppni við einkaaðila um auglýsingatekjur. Mikil umsvif RÚV og vera miðilsins á auglýsinga­markaði brenglar verulega samkeppnisskilyrði annarra fjölmiðla. Í krafti opinberrar meðgjafar og samkeppnisforskots er RÚV þannig aðsópsmeira á auglýs­inga­markaði en ella, sem veikir stöðu einkarekinna miðla enn frekar.[2]

Tveir vinsælustu fréttamiðlar landsins fá aðeins brot af þeim opinberu framlögum sem ríkisfjölmiðilinn nýtur. Það gefur því augaleið að opinber fjárframlög haldast ekki í hendur við vinsældir fjölmiðla og val neytenda á fjölmiðlum í núverandi mynd.

Því má ætla að ef tillagan nær fram að ganga mundi hluti neytenda velja að ráðstafa hluta útvarpsgjaldsins til einkarekinna miðla. Þó mun Ríkisútvarpið halda stórum hluta tekna vegna gjaldsins áfram vegna þess að það verður hinn sjálfvaldi (e. default) valkostur. Tillagan myndi því bæta stöðu einkarekinna miðla og ýta undir aukna samkeppni á markaðnum án þess að leiða til kollvörpunar.

Viðskiptaráð styður tillöguna og vonar að hún hljóti framgang.

Umsögnina í heild sinni má lesa hér.

Tilvísanir

1 Sjá nánar í úttekt Viðskiptaráðs (mars 2025): „Afsakið hlé: umhverfi fjölmiðla á Íslandi“. Slóð: https://vi.is/skodanir/afsakid-hle

2 Viðskiptaráð (mars 2025): „Afsakið hlé: umhverfi fjölmiðla á Íslandi“. Slóð: https://vi.is/skodanir/afsakid-hle

Tengt efni

Pakkaleikur á fjöl­miðla­markaði

„Einu lausnirnar sem er að finna í fjölmiðlapakkanum er meira af því sama og hefur verið reynt á fjölmiðlamarkaði undanfarin ár, þ.e. auknar opinberar …
7. janúar 2026

Menningarframlag óskilvirkur skattur sem nær ekki markmiðum sínum

Viðskiptaráð varar við því að skattlagning á streymisþjónustu gæti haft neikvæð áhrif á samkeppni og aukið kostnað neytenda. Þess í stað telur ráðið …
27. október 2025

Steinar í götu samrunaaðila

„Virk samkeppni er forsenda framleiðni- og hagvaxtar, en reglur sem eiga að tryggja hana mega ekki verða of íþyngjandi. Samkeppnislög þurfa að stuðla …
23. október 2025

Staða RÚV einsdæmi á Norðurlöndum

Rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla á Íslandi hefur um árabil einkennst af verulegum skekkjum, þar sem Ríkisútvarpið nýtur bæði opinberra framlaga …
26. september 2025

Breyting sem bitnar helst á fjölmiðlum sem veita stjórnvöldum aðhald

Viðskiptaráð lýsir áhyggjum af auknum umsvifum RÚV og minnkandi sjálfstæði einkarekinna fjölmiðla á Íslandi. Þetta kemur fram í umsögn ráðsins um …
20. maí 2025

Ójafn samkeppnisgrundvöllur á fjölmiðlamarkaði

Viðskiptaráð telur brýnt að leiðrétta skakka samkeppnisstöðu á fjölmiðlamarkaði, þar sem ríkisfjölmiðill nýtur umfangsmikilla opinberra framlaga á …
7. mars 2025