Viðskiptaráð Íslands

Einkamiðlar verða háðir velgengni RÚV

Viðskiptaráð fagnar því að lagakvöð um lágmarksfjölda rása RÚV verði afnumin en gerir alvarlegar athugasemdir við að hluti auglýsingatekna RÚV renni til einkarekinna miðla. Útfærslan gerir einkamiðla óbeint háða velgengni helsta samkeppnisaðila síns og skapar óeðlilega hvata. Ráðið telur löngu tímabært að taka RÚV af auglýsingamarkaði.

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar ofangreind frumvarpsdrög. Með þeim er ætlunin að bregðast við þeirri alvarlegu stöðu sem komin er upp á íslenskum fjölmiðlamarkaði. Frumvarpið felur annars vegar í sér afnám á lagakvöð um að Ríkisútvarpið skuli reka a.m.k. tvær útvarpsrásir og eina sjónvarpsstöð og hins vegar að framlag til RÚV verði skert um sem nemur 10% af auglýsingatekjum fjölmiðilsins, sem verði veitt í stuðning við einkarekna miðla. Þá munu tekjur af auglýsingum umfram 2,8 ma. kr. koma til frádráttar frá framlagi ríkisins til RÚV og sömuleiðis renna til stuðnings við einkarekna miðla.

Afnám lágmarksfjölda rása jákvætt skref

Viðskiptaráð fagnar því að lagakvöð um ákveðinn lágmarksfjölda rása sem RÚV eigi að reka sé afnumin og fjölmiðlinum þannig gert kleift að fækka útvarpsrásum. Ráðið telur þó eðlilegt að ríkið sem eigandi RÚV hafi skoðun á umfangi miðilsins og þ.m.t. þeim fjölda sjónvarps- og útvarpsrása sem miðillinn miðlar efni sínu í gegnum. Í núverandi lagaumhverfi eru ekki settar skorður á fjölda rása sem RÚV er heimilt að halda úti. Ákvæði um hámarksfjölda rása myndi setja RÚV eðlilegar samkeppnisskorður og væri liður í því að skapa eðlilegra og fyrirsjáanlegra samkeppnisumhverfi á fjölmiðlamarkaði.

Einkamiðlar verða háðari opinberum stuðningi

Viðskiptaráð gerir alvarlegar athugasemdir við fyrirhugaða útfærslu á auknum stuðningi til einkarekinna miðla og þær markaðsaðstæður sem skapast við það að hlutfall af auglýsingatekjum RÚV renni til þeirra.

Þessi útfærsla á upphæð stuðningsins skapar sérkennilega hvata fyrir þá sem starfa í tekjuöflun á fjölmiðlamarkaðnum. Við breytinguna munu fyrirtæki í samkeppni við RÚV hafa hag af því að einn þeirra helsti samkeppnisaðili selji fleiri auglýsingar, svo þeir geti eygt von um að fá hærri styrki frá hinu opinbera. Breytingin mun gera einkareknu miðlana enn háðari hinu opinbera. Nú þegar fá þeir styrki frá hinu opinbera, en fari breytingin í gegn munu þeir jafnframt vera óbeint háðir velgengni opinbers samkeppnisaðila.

Jafnframt vekur athygli að í aðgerðaáætlun fyrir fjölmiðla, sem liggur til grundvallar frumvarpinu, var gert ráð fyrir að stuðningurinn næmi 12% af auglýsingatekjum RÚV, en í frumvarpsdrögunum er hlutfallið 10%. Ekki er gerð fullnægjandi grein fyrir þessari breytingu eða þeim forsendum sem liggja henni að baki. Það vekur meðal annars athygli í ljósi þess að fyrirhugað framlag ríkisins til RÚV í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 er 7,5 falt hærra en samanlagður stuðningur við einkarekna fjölmiðla. Þá hefur ríkið þegar boðað yfirtöku á láni RÚV vegna skuldbindinga við LSR, sem jafnframt var tilgreind sem mótvægisaðgerð í aðgerðaáætluninni (mynd 1).

Sé vilji stjórnvalda að fara þá leið að styðja einkareknu miðlana með þessu hætti væri eðlilegra að sá stuðningur tæki fremur mið af því hlutfalli sem boðað var í aðgerðaáætlun en að dregið sé í land nú þegar frumvarpið er birt. Að mati Viðskiptaráðs undirstrikar þetta að útfærslan á hlutfalli við stuðning einkarekinna miðla virðist illa undirbyggð í frumvarpsdrögunum.

Þak á auglýsingatekjur skapar óeðlilega hvata

Viðskiptaráð geldur einnig varhug við útfærslu á fyrirhuguðu „þaki“ á auglýsingatekjur RÚV og þá hvata sem það skapar fyrir RÚV að auglýsingatekjur umfram 2,8 ma. kr. skuli renna óskiptar til samkeppnisaðila opinbera miðilsins.

Útfærslan getur skapað hvata til undirboða á auglýsingamarkaði. Ef það er ljóst að tekjur RÚV af auglýsingasölu á tilteknu ári muni fara yfir þakið getur skapast hvati hjá til að selja vöruna á lægra verði, þannig að auglýsingatímar fyllist, en tekjurnar af því verði innan þess þaks sem sett er á auglýsingatekjur miðilsins. Einnig er vert að velta því upp hvað gerist þegar þakinu er náð og tekjur af auglýsingum eru hættar að renna til RÚV og farnar að renna til samkeppnisaðila. Ætla má að hvatar miðilsins til auglýsingasölu séu takmarkaðir. Ekki er hægt að gera ráð fyrir því að einstaklingar sem starfa fyrir ákveðið fyrirtæki hegði sér með sama hætti, þegar fyrirtækið sem þeir vinna fyrir hættir að njóta góðs af vinnu þeirra og hún er farin að gagnast samkeppnisaðilum.

Ef markmið stjórnvalda er að takmarka tekjur og/eða umfang RÚV á auglýsingamarkaði eru skilvirkari leiðir færar. Til dæmis væri hægt að setja frekari takmarkanir á auglýsingatíma eða auglýsingabirtingar RÚV. Slík útfærsla hefði ekki þá galla sem sú leið sem lögð er til í frumvarpsdrögunum hefur í för með sér.

Fjármögnunarlíkan RÚV einsdæmi á Norðurlöndunum

Viðskiptaráð vill jafnframt benda á að samanburður sem settur er fram í greinargerð með frumvarpinu þar sem segir „Mikill meirihluti eða tæplega 80% almannaþjónustumiðla í Evrópu, sem aðild eiga að Sambandi evrópskra sjónvarpstöðva (EBU), eru fjármagnaðir með sambærilegum, blönduðum hætti“ er villandi. Vissulega er tæplega 80% miðla almannaþjónustumiðla í Evrópu á auglýsingamarkaði, en Ísland er þó meðal þeirra þjóða sem setja ekki strangar takmarkanir á sjónvarpsauglýsingasölu sinna miðla (mynd 2). Jafnframt eru tekjur almannaþjónustumiða af auglýsingum um 9,8%[1], en hlutdeild auglýsingatekna í tekjum RÚV er um 27%.

Þegar horft er til Norðurlandanna, sem við berum okkur jafnan saman við, sést að staða ríkisfjölmiðilsins á Íslandi er einsdæmi. RÚV eini ríkismiðill Norðurlanda sem þiggur bæði opinber framlög og hefur heimild til auglýsingasölu (mynd 3). Þetta hefur gert það að verkum að hvergi á Norðurlöndunum er markaðshlutdeild ríkismiðilsins jafn mikil og hér á landi, en hlutdeild RÚV í heildartekjum á fjölmiðlamarkaði er 27%, samanborið við 10% að meðaltali á Norðurlöndunum.

Frumvarpið tekur ekki á rót vandans á fjölmiðlamarkaði

Viðskiptaráð hefur lýst yfir áhyggjum af minnkandi umsvifum einkarekinna fjölmiðla á Íslandi á sama tíma og vægi hins opinbera á fjölmiðlamarkaði hefur aukist.[2] Í því samhengi hefur ráðið bent á nauðsyn þess að ráðast að rót vandans, sem er það óeðlilega samkeppnisumhverfi sem einkareknir fjölmiðlar búa við á Íslandi. Þar vegur þyngst skekkjan sem RÚV veldur, þar sem að miðillinn nýtur bæði opinberra framlaga og keppir við einkaaðila um auglýsingatekjur.

Ráðið leggur áherslu á að vandinn á fjölmiðlamarkaði verði ekki leystur með því að auka umfang hins opinbera á markaðnum. Þær breytingar sem nú eru boðaðar skapa sérkennilega hvata, bæði fyrir þá sem starfa hjá einkareknum og opinberum miðlum, og gera fjölmiðla enn háðari styrkjakerfi hins opinbera. Jafnframt vill ráðið árétta að opinber stuðningur við einkarekna miðla á uppruna sinn í viðbrögðum við efnahagslegum áhrifum vegna heimsfaraldurs og var ekki ætlað að vera varanlegt úrræði.[3]

Að lokum er áréttað að opinbert styrkjakerfi fyrir einkarekna fjölmiðla samræmist illa lýðræðissjónarmiðum þar sem frjálsir fjölmiðlar gegna mikilvægu aðhaldshlutverki gagnvart stjórnvöldum. Það að gera þá verulega fjárhagslega háða hinu opinbera veikir aðhaldshlutverkið og dregur úr óhæði þeirra gagnvart ríkjandi stjórnvöldum.

Viðskiptaráð telur löngu tímabært að ráðast að rót vandans og búa fjölmiðlum samkeppnishæft starfsumhverfi. Það mætti m.a. gera með því að taka RÚV af auglýsingamarkaði og jafna stöðu innlendra og erlendra miðla hvað varðar takmarkanir á auglýsingum og kvaðir.

Viðskiptaráð hvetur stjórnvöld til að taka mið af ofangreindum sjónarmiðum við vinnslu frumvarpsins.

Tilvísanir

[1] Sarkissian, N. (2020). How is the budget of public broadcasters formed? Chech Diary. Slóð: https://media.am/en/critique/2020/06/15/22211/

[2] Sjá úttekt Viðskiptaráðs (mars 2025): „Afsakið hlé: umhverfi fjölmiðla á Íslandi”. Slóð: https://vi.is/skodanir/afsakid-hle

[3] Lög um breytingu á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru (frekari aðgerðir). Slóð: https://www.althingi.is/altext/stjt/2020.037.html

Tengt efni

Brýnt að ráðast að rót vandans á fjölmiðlamarkaði

Viðskiptaráð leggst gegn frumvarpi um framlengingu rekstrarstuðnings við einkarekna fjölmiðla til fimm ára. Að mati ráðsins er í frumvarpinu ekki …
6. maí 2026

Opinberir fjölmiðlastyrkir andstæðir lýðræðissjónarmiðum

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar frumvarp sem felur í sér breytingar á opinberu styrkjakerfi fjölmiðla. Ráðið varar við að slíkt kerfi viðhaldi …
17. mars 2026

Pakkaleikur á fjöl­miðla­markaði

„Einu lausnirnar sem er að finna í fjölmiðlapakkanum er meira af því sama og hefur verið reynt á fjölmiðlamarkaði undanfarin ár, þ.e. auknar opinberar …
7. janúar 2026

Auka ætti frelsi í ráðstöfun útvarpsgjalds

Viðskiptaráðs styður að neytendum verði veitt aukið frelsi til að ráðstafa útvarpsgjaldinu með þeim hætti sem þeir kjósa. Ganga mætti enn lengra og …
8. desember 2025

Staða RÚV einsdæmi á Norðurlöndum

Rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla á Íslandi hefur um árabil einkennst af verulegum skekkjum, þar sem Ríkisútvarpið nýtur bæði opinberra framlaga …
26. september 2025

Menningarframlag óskilvirkur skattur sem nær ekki markmiðum sínum

Viðskiptaráð varar við því að skattlagning á streymisþjónustu gæti haft neikvæð áhrif á samkeppni og aukið kostnað neytenda. Þess í stað telur ráðið …
27. október 2025