Viðskiptaráð Íslands

Ríkið keppi ekki við atvinnulífið um sérfræðinga

Viðskiptaráð tekur undir markmið frumvarps um Stafræna heilsu en telur að afmarka þurfi betur heimildir stofnunarinnar og tryggja valfrelsi heilbrigðisþjónustuveitenda. Þá gagnrýnir ráðið rammasamningsútboð Stafrænnar heilsu, sem það telur fela í sér gerviverktöku og setja ríkið í beina samkeppni við íslensk fyrirtæki um sérfræðinga.

Hlustunarpípa

Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð Íslands (samtökin) hafa tekið til umsagnar frumvarp til laga um Stafræna heilsu, 290. mál á 158. löggjafarþingi. Með frumvarpinu er lagt til að sett verði heildstæð lagaumgjörð um starfsemi Stafrænnar heilsu og stafræna innviði heilbrigðiskerfisins.

Stafræn heilsa hefur frá 1. janúar starfað sem sérstök starfseining innan heilbrigðisráðuneytisins, en fyrirliggjandi frumvarpi er ætlað að gera Stafræna heilsu að ríkisstofnun sem heyrir undir ráðherra. Sem sjálfstæð stofnun mun Stafræn heilsa taka við verkefnum frá Landspítala, embætti landlæknis og fleiri stofnunum. Gert er ráð fyrir að starfsemin verði áfram rekin innan heilbrigðisráðuneytisins til 1. janúar 2029 en að frá þeim tíma taki Stafræn heilsa til starfa sem ríkisstofnun samkvæmt lögunum. Fyrirliggjandi frumvarp hefur m.a. að geyma ákvæði um hlutverk og verkefni Stafrænnar heilsu, stafræna innviði heilbrigðiskerfisins, tæknilegar kröfur og tengingar, vinnslu persónuupplýsinga og tæknilega umgjörð stafrænna sjúkraskrárkerfa.

Í dag starfa um 60 starfsmenn hjá Stafrænni heilsu og forstöðumaður hefur verið skipaður, þótt frumvarp um eiginlega stofnun sjálfstæðrar ríkisstofnunar hafi ekki verið samþykkt. Að mati samtakanna þarf að sýna betur fram á nauðsyn og hagkvæmni þess að stofna sjálfstæða ríkisstofnun, enda leiðir flutningur verkefna og starfsfólks á milli opinberra aðila ekki sjálfkrafa til hagræðingar. Miðað við umfjöllun í greinargerð telja samtökin þörf á skýrara mati á framtíðarútgjöldum, starfsmannaþörf og hvernig umfang starfseminnar eigi að þróast fram til 2029 og eftir það tímamark.

Samtökin taka undir markmið frumvarpsins um aukna samhæfingu, samvirkni kerfa og örugga upplýsingamiðlun. Mikil tækifæri felast í stafrænni þróun heilbrigðiskerfisins, bæði til að bæta þjónustu og nýta opinbert fjármagn betur. Á sama tíma er nauðsynlegt að greint sé á milli þess að ríkið tryggi sameiginlega grunninnviði og tæknilega umgjörð annars vegar og þess að ríkið þrói og reki sjálft einstaka tæknilausnir hins vegar. Þá er mikilvægt að heimildir Stafrænnar heilsu séu ekki svo víðtækar að þær dragi úr hvata einkaaðila til fjárfestinga og nýsköpunar. Í þessu samhengi er að mati samtakanna nauðsynlegt að þær heimildir Stafrænnar heilsu sem felast í 5., 8. og 14. gr. frumvarpsins verði afmarkaðar betur. Þá vilja samtökin jafnframt gjalda varhug við heimild ráðherra til að skylda heilbrigðisþjónustuveitendur til að nota tiltekin kerfi, lausnir eða þjónustu, sbr. 4. mgr. 8. gr. og 1. tölul. 2. mgr. 16. gr. frumvarpsins. Þótt heimildin sé bundin tilteknum skilyrðum og frumvarpið geri ráð fyrir að Stafræn heilsa annist einkum innviði sem ætlaðir eru til miðlægrar notkunar telja samtökin mikilvægt að skyldubundin notkun einstakra kerfa gangi ekki lengra en nauðsynlegt er. Meginreglan ætti að vera valfrelsi þjónustuaðila milli lausna sem uppfylla samræmdar kröfur um öryggi og samvirkni, ella er hætta á að nýjar lausnir verði útilokaðar og samkeppni takmörkuð. Þá leggja samtökin áherslu á að aðkoma fyrirtækja sem þróa stafrænar heilbrigðislausnir að stefnuráði stofnunarinnar verði tryggð og að samráð verði skylt við mótun tæknilegra krafa og undirbúning breytinga sem hafa veruleg áhrif á starfsemi fyrirtækja.

Óeðlileg samkeppni ríkisstofnunar við fyrirtæki

Á meðal þeirra verkefna sem Stafrænni heilsu er falið skv. frumvarpinu er að annast samhæfða uppbyggingu, þróun, rekstur og tæknilega umsýslu stafrænna innviða heilbrigðiskerfisins. Stafrænni heilsu er jafnframt heimilt að taka þátt í þróunarstarfi, rannsóknar- og nýsköpunarverkefnum á starfssviði sínu skv. 14. gr. frumvarpsins. Samkvæmt 2. mgr. umræddrar lagagreinar skal Stafræn heilsa stuðla að þróun og framþróun stafrænna innviða heilbrigðiskerfisins. Um 14. gr. frumvarpsins segir m.a. í greinargerð:

„Ákvæðið byggist ekki á því að Stafræn heilsa þrói sjálf allar stafrænar lausnir sem nýttar eru í heilbrigðisþjónustu. Þvert á móti er gert ráð fyrir að bæði opinberir aðilar og einkaaðilar geti þróað og boðið lausnir sem nýst geta innan heilbrigðiskerfisins. Hlutverk Stafrænnar heilsu er að þessu leyti einkum að stuðla að því að fyrir hendi séu sameiginlegar tæknilegar forsendur sem gera þróun, val og innleiðingu ólíkra lausna mögulega án þess að slakað sé á kröfum um öryggi og samvirkni.“

Samtökin ítreka mikilvægi þess að hið opinbera sé ekki leiðandi aðili í tækni- eða hugbúnaðarþróun og fagna þeirri viðleitni sem virðist koma fram í ofangreindri tilvitnun í greinargerðina til þess að nýta þær hugbúnaðar- og tæknilausnir sem þegar eru til staðar og hægt væri að kaupa sem þjónustu áður en hið opinbera fer sjálft í kostnaðarsama þróun á slíkri tækni. Samtökin vilja aftur á móti árétta mikilvægi þess að rétt sé staðið að slíkum kaupum hins opinbera á hvers lags utanaðkomandi þjónustu svo að tryggja megi jafnræði, gagnsæi og þá auknu hagkvæmni sem slík kaup eiga að skila. Því miður hafa komið í ljós augljósar brotalamir á því fyrirkomulagi sem lagt er til grundvallar við útboð Stafrænnar heilsu á rammasamningi um upplýsingatækniþjónustu, en fyrirkomulagið hefur stillt hinu opinbera upp í virka samkeppni við íslensk fyrirtæki um dýrmætan starfskraft.

Í dag, 25. nóvember 2026, rann út útboðsfrestur á rammasamningsútboði Stafrænnar heilsu á sérfræðingum í hugbúnaðarþróun, rekstri og ráðgjöf. Samningurinn getur numið u.þ.b. milljarði króna á ári í allt að fjögur ár. Útboðið er sett upp þannig að kaupandi velji einstaka sérfræðinga fremur en teymi, kaupir af þeim verktíma og stýrir vinnu þeirra eins og vinnuveitandi, án þess þó að ráða viðkomandi sérfræðinga sem starfsmenn. Efnislega virðist þetta fyrirkomulag fela í sér ráðningarsamband, þar sem greitt er fyrir tíma en ekki afrakstur, án þess þó að um eiginlegt ráðningarsamband sé að ræða. Að mati samtakanna getur umrætt fyrirkomulag varla falið annað í sér en gerviverktöku hins opinbera sem rétt er að slá varnagla við. Slíkt fyrirkomulag felur í sér beina samkeppni upplýsingatæknifyrirtækja við ríkið um eigið starfsfólk auk þess sem fyrirkomulagið er til þess fallið að draga úr öryggiskröfum í þeim kerfum sem eru undir.

Áhrif þess fyrirkomulags sem lagt er til grundvallar útboðinu ættu að vera hinu opinbera ljós: íslensk fyrirtæki missa starfsfólk til hins opinbera, þurfa að greiða hærri laun til þess að halda starfsfólki eða fá skert starfsframlag frá starfsfólki sem sinnir vinnu fyrir ríkið samhliða. Þessu til viðbótar skerðist samkeppnisstaða fyrirtækja enn frekar vegna þess kostnaðar sem tímagjald þarf að standa undir innan þeirra, s.s. launatengdra gjalda, trygginga o.fl., en ekki síður vegna þess óskýrleika sem felst í skyldu Stafrænnar heilsu til þess að greiða virðisaukaskatt af eigin vinnu líkt og við á um aðkeypta þjónustu af fyrirtækjum.

Samtökin telja þá leið sem farin er í fyrirliggjandi útboði Fjársýslunnar vera beinlínis til þess fallna að draga úr samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs. Samtökin telja nauðsynlegt, nú þegar löggjafinn hyggst samþykkja sérlög um Stafræna heilsu, að gerðar verði breytingar á frumvarpinu sem tryggi að innkaupastefna hins opinbera vegna upplýsingatæknilausna styðji við verðmætasköpun í þjóðfélaginu frekar en veiki hana.

Með hliðsjón af framangreindum athugasemdum leggja samtökin til eftirfarandi breytingar á frumvarpinu:

  1. Skylda til að nota tiltekin kerfi (4. mgr. 8. gr.) falli brott eða takmarkist við tengingu við miðlæga innviði. Allar lausnir sem uppfylla kröfur skv. 9. gr. séu heimilar.
  2. Í 14. gr. verði lögfest sú meginregla að Stafræn heilsa nýti að jafnaði lausnir á markaði og kanni framboð þeirra áður en ráðist er í eigin þróun.
  3. Heimildir samkvæmt 3. mgr. 8. gr. og fyrirhugaðri 21. gr. a sjúkraskrárlaga verði takmarkaðar við tilvik þar sem markaðslausnir eru ekki tiltækar eða fullnægjandi.
  4. Verksvið Stafrænnar heilsu samkvæmt 2. mgr. 8. gr. verði afmarkað með skýrari hætti og tryggt að stofnunin geti ekki einhliða ákvarðað umfang eigin verkefna.
  5. Tryggð verði óháð kæru- eða endurskoðunarleið frá gildistöku laganna.
  6. Lögfest verði skylda til samráðs við fyrirtæki áður en bindandi tæknikröfur eru settar, tryggður hæfilegur aðlögunartími og aðkoma atvinnulífsins að stefnuráði.
  7. Sýnt verði fram á nauðsyn og hagkvæmni stofnunar sjálfstæðrar ríkisstofnunar.

Tengt efni

Samþjöppun eftirlits má ekki bitna á öðrum verkefnum Fjarskiptastofu

Viðskiptaráð tekur undir markmið frumvarpsdraga um að færa eftirlit með öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða til Fjarskiptastofu. Ráðið …
7. október 2026

Samþjöppun eftirlits má ekki bitna á öðrum verkefnum Fjarskiptastofu

Viðskiptaráð tekur undir markmið frumvarpsdraga um að færa eftirlit með öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða til Fjarskiptastofu. Ráðið …
7. október 2026

Samþjöppun eftirlits má ekki bitna á öðrum verkefnum Fjarskiptastofu

Viðskiptaráð tekur undir markmið frumvarpsdraga um að færa eftirlit með öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða til Fjarskiptastofu. Ráðið …
7. október 2026

Aukið öryggi fjarskipta kalli ekki á aukinn opinberan rekstur

Viðskiptaráð leggur áherslu á að aukið öryggi fjarskipta þurfi ekki að kalla á aukinn opinberan rekstur, varar við gullhúðun við innleiðingu …
28. ágúst 2026

Jöfn rekstrarskilyrði heilsugæslu forsenda betri þjónustu

Viðskiptaráð tók til umsagnar drög að reglugerð um heilsugæslu og tekur undir markmið hennar um að jafna stöðu opinberrar og einkarekinnar …
5. ágúst 2026

Útvistun eftirlits fylgi fækkun heilbrigðisnefnda

Viðskiptaráð telur frumvarp um fækkun heilbrigðisnefnda mikilvægt skref í átt að einfaldara og skilvirkara eftirliti. Þó gagnrýnir ráðið frávik frá …
20. apríl 2026