Viðskiptaráð Íslands

Útvistun eftirlits fylgi fækkun heilbrigðisnefnda

Viðskiptaráð telur frumvarp um fækkun heilbrigðisnefnda mikilvægt skref í átt að einfaldara og skilvirkara eftirliti. Þó gagnrýnir ráðið frávik frá gagnsæjum ráðningum sem felast í frumvarpinu og leggur áherslu á að útvista eigi framkvæmd eftirlits til faggiltra einkaaðila til að auka hagkvæmni og samkeppni.

Viðskiptaráð hefur skilað umsögn um frumvarp umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra um fækkun heilbrigðisnefnda. Frumvarpið felur í sér breytingar á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni í eftirliti með hollustuháttum og mengunarvörnum. Með breytingunni færist framkvæmd eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum alfarið til Umhverfis- og orkustofnunar. Samhliða því verða heilbrigðisnefndir og heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga aflögð.

Mikilvægt skref í átt að aukinni skilvirkni

Viðskiptaráð fagnar áformum um að aukna skilvirkni og að það standi til að einfalda framkvæmdina. Mikið óhagræði fylgir núverandi fyrirkomulagi og skortur er á samræmi í framkvæmd heilbrigðiseftirlits. Heilbrigðisumdæmin reka t.d. fimm mismunandi gagnagrunna, gjaldskrár eru ósamræmdar milli heilbrigðisumdæma og nefndirnar misvel búnar hvað varðar fjárráð og mannafla, sem hefur áhrif á getu þeirra til að sinna skyldum sínum.

Óhagræðið við núverandi fyrirkomulag hefur jafnframt lengi legið fyrir og ljóst að breytinga er þörf. Í skýrslu frá árinu 2001 um Hollustuvernd ríkisins er fjallað um þau vandamál sem fylgja fyrirkomulaginu, sérstaklega hvað varðar samræmingu, þegar eftirlitið er í höndum svo margra aðila. Heilbrigðiseftirlit var líka umfjöllunar­efni í skýrslu Hagfræðistofnunar um eftirlitsiðnaðinn á Íslandi frá 2003. Um galla fyrirkomulagsins var einnig fjallað í úttekt Ríkisendurskoðunar á Matvælastofnun frá árinu 2013, í skýrslu frá starfshópi um fyrirkomulag heilbrigðiseftirlits frá árinu 2015, í greiningu KPMG á opinberu eftirliti frá 2020 og nú síðast í skýrslu starfshóps um fyrirkomulag eftirlits með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum frá því í ágúst 2023.

Óeðlilegt frávik frá auglýsingaskyldu

Viðskiptaráð gerir athugasemd við ákvæði til bráðabirgða sem kveður á um frávik frá auglýsingaskyldu samkvæmt starfsmannalögum og veitir þannig ákveðnum hópi forgang til starfa við eftirlit með hollustuháttum og mengunarvörnum. Með ákvæðinu er í reynd vikið frá meginreglum um gagnsæi og jafnræði við ráðningar í opinber störf, þar sem ekki er gert ráð fyrir opinni auglýsingu og því takmörkun á samkeppni um störf. Að mati ráðsins væri æskilegast að störfin yrðu auglýst opinberlega og almenningi þannig gefinn kostur á að sækja um. Verði hins vegar vikið frá meginreglu um auglýsingaskyldu er mikilvægt að tryggja að beiting forgangsréttar byggist á skýrum og gagnsæjum hæfisskilyrðum og að málsmeðferð við val á starfsfólki sé í samræmi við meginreglur stjórnsýsluréttar.

Aukið hagræði af faggiltum eftirlitsstofum

Viðskiptaráð hvetur eindregið til þess að framkvæmd eftirlitsins verði útvistað til faggiltra eftirlitsaðila. Stjórnsýslu­þáttur eftirlitsins yrði þá áfram í höndum Umhverfis- og orkustofnunar, en faggiltir skoðunaraðilar myndu sjá um framkvæmd eftirlitsins. Þannig mætti skapa forsendur til að þróa eftirlitsaðferðir með þeim hætti að óhagræði eftirlitsskyldra aðila sé lágmarkað án þess að dregið sé úr kröfum um öryggi og vernd. Þetta fyrirkomulag myndi jafnframt gera einstaklingum sem starfa í heilbrigðis­eftirliti tækifæri til að setja á fót eigin rekstur og keppa sín á milli.

Ávinningur þess að fela faggildum aðilum framkvæmd eftirlits getur verið mikill. Dæmi um slíkt er öryggiseftirlit með bifreiðum sem var til ársins 1989 aðeins í höndum Bifreiðaeftirlits ríkisins. Árið 1995 var framkvæmd eftirlitsins gefin frjáls og í kjölfarið hófu einkareknar skoðunarstofur að sinna eftirlitinu. Stjórnsýsluþáttur eftirlitsins var áfram á vegum opinberrar stofnunar, sem í dag er Samgöngustofa. Í dag eru fjórar starfandi einka­reknar faggiltar skoðunarstofur sem sinna eftirliti með öryggi bifreiða um allt land með góðu móti.

Að framangreindu virtu hvetur Viðskiptaráð til þess að frumvarpið nái fram að ganga og að framkvæmd eftirlitsins verði útvistað til faggiltra skoðunaraðila.

Tengt efni

Auka ætti frekar valfrelsi við ráðstöfun séreignarsparnaðar

Viðskiptaráð fagnar framlagningu frumvarps um varanlega heimild til ráðstöfunar viðbótariðgjalds til séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána …
20. apríl 2026

Stofnun atvinnuveganna leiði ekki til aukinna umsvifa

Viðskiptaráð styður markmið frumvarpsins um að sameina þrjár stofnanir í eina til að auka skilvirkni og bregðast við athugasemdum Eftirlitsstofnunar …
16. apríl 2026

Fiskeldi fái svigrúm til að komast á legg

Viðskiptaráð fagnar því að stefnt sé að setningu heildstæðrar löggjafar um lagareldi. Ráðið telur mikilvægt að samræma regluverkið til að auka …
16. apríl 2026

Veggjöld á eldri mannvirki óforsvaranleg

Viðskiptaráð telur hugmyndina um innviðafélag geta falið í sér framför ef rétt er á málum haldið, en telur frumvarpið í núverandi mynd ófullkomið. …
16. apríl 2026

Tugmilljarða kostnaður vegna úreltrar uppsagnarverndar

Viðskiptaráð styður afnám áminningarskyldu ríkisstarfsmanna og telur breytinguna nauðsynlega til að samræma reglur á opinberum og almennum …
15. apríl 2026

Smærri félögum veittur rýmri frestur

Viðskiptaráð styður frumvarpið og hvetur til þess að það nái fram að ganga. Þá fagnar ráðið því að stærðarmörk fyrirtækja séu hækkuð í samræmi við …
9. apríl 2026