Viðskiptaráð Íslands

Vaxandi norðanátt: opinn fundur á Akureyri

Viðskiptaráð stendur fyrir opnum fundi með fulltrúum atvinnulífs og stjórnvalda á Norðurlandi þann 20. nóvember hjá Drift EA á Akureyri.

Viðskiptaráð stendur fyrir opnum fundi með fulltrúum atvinnulífs og stjórnvalda á Norðurlandi. Fundurinn fer fram 20. nóvember í Messanum hjá Drift EA á Akureyri og hefst kl. 16:30.

Þátttakendur í pallborði eru eftirfarandi:

  • Ásta Fjeldsted, forstjóri Festi
  • Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrarbæjar
  • Páll Kristjánsson, framkvæmdastjóri Slippsins DNG

Björn Brynjúlfur, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, er fundarstjóri og stýrir pallborði. Gunnar Úlfarsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, fer yfir horfur í atvinnulífi og efnahagsmálum.

Fundurinn er öllum opinn án endurgjalds á meðan húsrúm leyfir. Við hvetjum Norðlendinga sérstaklega til að mæta og óskum eftir að fundargestir skrái sig fyrirfram.

Hér er hægt að skrá sig á fundinn.

Tengt efni

Viðskiptaþing 2025

Viðskiptaþing 2025 fer fram 13. febrúar í Borgarleikhúsinu og er einn stærsti …
13. febrúar 2025

Kosningafundur 2024

Kosningafundur Viðskiptaráðs verður haldinn í Hörpu miðvikudaginn 13. nóvember …
13. nóvember 2024

Samkeppnishæfni Íslands 2024

Morgunfundur um niðurstöður nýrrar úttektar IMD á samkeppnishæfni Íslands í …
20. júní 2024