Viðskiptaráð hefur tekið í notkun nýtt kerfi fyrir upprunavottorð á uppruni.vi.is. Innskráning er einfaldari, kerfið virkar jafn vel í síma og tölvu og fyrirtæki geta tengt það beint við eigin kerfi. Mánudaginn 30. nóvember 2026 færast allir notendur sjálfkrafa yfir í nýja kerfið.

Viðskiptaráð Íslands gefur út upprunavottorð fyrir vörur sem íslensk fyrirtæki flytja út. Umsóknir og útgáfa fara fram rafrænt, og nú hefur nýtt kerfi tekið við því hlutverki. Það er á uppruni.vi.is og er opið nú þegar.
Ekki þarf lengur að muna lykilorð. Notandi slær inn netfangið sitt, velur „Fá kóða í tölvupósti“ og skráir sig inn með sex stafa kóða. Þeir sem vilja nota lykilorð áfram geta það, og eldri notandanöfn gilda óbreytt.
Fyrirtæki sem gefa út mörg vottorð geta tengt nýja kerfið við eigin sölu- eða bókhaldskerfi og gert ferlið sjálfvirkt. Í gegnum vefþjónustu (API) er hægt að stofna umsókn, hengja við fylgiskjöl, senda hana inn, fylgjast með afgreiðslu og sækja útgefið vottorð. Lykil að vefþjónustunni býr hver notandi til sjálfur undir Stillingar. Leiðbeiningar um vefþjónustuna eru öllum opnar.
Nýja kerfið er opið á uppruni.vi.is. Mánudaginn 30. nóvember 2026 kl. 10 verður eldra kerfinu á vi.esja.com lokað og slóðin vísar þaðan í frá sjálfkrafa á nýja kerfið. Fram að því má nota hvort kerfið sem er.
Fyrirtæki sem eru með sjálfvirka tengingu við eldra kerfið þurfa að færa hana yfir á nýju vefþjónustuna fyrir þann dag.
Nánari upplýsingar og aðstoð veitir Viðskiptaráð í netfanginu mottaka@vi.is og í síma 510 7100.