Viðskiptaráð Íslands

Ný útgáfa leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja

Sjöunda útgáfa leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja er komin út. Samhliða útgáfunni hefur nýr og endurbættur vefur, leidbeiningar.is, verið tekinn í notkun. Áhersla var lögð á að einfalda leiðbeiningarnar og skýra framsetningu þeirra frekar en að bæta við tilmælum. Nýja útgáfan tekur gildi 1. janúar 2027.

Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq Iceland hafa gefið út sjöundu útgáfu leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja. Samhliða útgáfunni hefur nýr vefur, leidbeiningar.is, verið tekinn í notkun. Þar má nálgast leiðbeiningarnar í gagnvirkri vefútgáfu á íslensku og ensku. Nýja útgáfan tekur gildi 1. janúar 2027.

Við endurskoðunina var leitað eftir sjónarmiðum aðildarfélaga Viðskiptaráðs og SA og skráðra félaga í Nasdaq Iceland um reynslu þeirra af leiðbeiningunum. Niðurstaðan var að leiðbeiningarnar hefðu almennt reynst vel og ekki væri tilefni til umfangsmikilla breytinga. Því var lögð áhersla á að einfalda framsetningu, skýra einstök atriði og koma í veg fyrir að leiðbeiningarnar þróuðust í átt að sífellt ítarlegra regluverki. Drög voru send helstu hagaðilum til umsagnar og leiddu fjölmargar ábendingar til breytinga.

Helstu breytingar

Veigamesta breytingin er að tilmæli eru nú almennt orðuð með „ætti“ í stað „skal“. Það er í samræmi við leiðbeiningar á hinum Norðurlöndunum og undirstrikar að um leiðbeinandi viðmið er að ræða en ekki bindandi reglur. Félög sem segjast fylgja leiðbeiningunum þurfa þó áfram að fylgja einstökum tilmælum eða skýra frávik frá þeim. Nánar er fjallað um „fylgið eða skýrið“ nálgunina í inngangi.

Textinn hefur einnig verið einfaldaður. Neðanmálsgreinum hefur verið fækkað, skilgreiningar hafa verið færðar á einn stað og hugtakanotkun samræmd. Meðal efnislegra breytinga má nefna að ekki eru lengur sérstök tilmæli um að stjórnarmaður gegni ekki formennsku í tilnefningarnefnd og fjölmennari stjórnir fá aukið svigrúm til að hafa fleiri en einn daglegan stjórnanda í stjórn, svo lengi sem hlutfall þeirra fer ekki yfir fimmtung stjórnarmanna. Hlutverk endurskoðunarnefndar er orðað sem mat á áreiðanleika upplýsingagjafar. Þá er í umfjöllun um sjálfbærni lögð áhersla á þá þætti sem skipta máli fyrir starfsemi hvers félags og að stefnum sé fylgt eftir en að koma ætti í veg fyrir tvíverknað varðandi skýrslugjöf.

Nýr vefur

Á leidbeiningar.is má lesa leiðbeiningarnar í gagnvirkri vefútgáfu með leit og efnisyfirliti. Þar er einnig að finna yfirlit yfir breytingar frá 6. útgáfu, greinargerð um endurskoðunina og samráðið, ítarefni og upplýsingar um viðurkenninguna Fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum.

Tengt efni

Ný útgáfa leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja

Sjöunda útgáfa leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja er komin út. Samhliða útgáfunni hefur nýr og endurbættur vefur, leidbeiningar.is, verið tekinn …
21. október 2026

Ný útgáfa leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja

Ný útgáfa stjórnarháttaleiðbeininga verður kynnt á viðburði í Háteigi, Hótel Reykjavík Grand 21. október 2026.
21. október 2026

Ný útgáfa leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja

Ný útgáfa stjórnarháttaleiðbeininga verður kynnt á viðburði í Háteigi, Hótel Reykjavík Grand 21. október 2026.
5. október 2026

Ný útgáfa leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja lítur dagsins ljós

Á stafrænum útgáfuviðburði voru helstu breytingar á leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja kynntar í meginatriðum
2. febrúar 2021

6. útgáfa leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja

Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq Iceland hafa gefið út 6. útgáfu leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja ásamt upplýsingariti um …
5. febrúar 2021