Viðskiptaráð Íslands

Opinbert starf fyrir alla?

Í þeirri aðlögun sem fram undan er í ríkisfjármálum verður illa komist hjá því að flestir hópar samfélagsins verði fyrir einhverri rýrnun lífskjara. Til að lágmarka þann skaða er mikilvægt að leiðarljós aðlögunar verði hagsýni, raunsæi og heildarhagsmunir. Þar knýr á um að stjórnvöld geri sér grein fyrir hagrænum afleiðingum þess að ójafnvægi myndist á milli almenna og opinbera vinnumarkaðarins.

Á undanförnum áratug hefur opinberum starfsmönnum fjölgað um 30% og starfsmönnum í opinberri stjórnsýslu um 55%, en á sama tíma hefur starfsmönnum á almennum vinnumarkaði einungis fjölgað um 3%. Frá hruni bankanna hefur lítil aðlögun átt sér stað meðal opinberra starfsmanna, en til marks um það fjölgaði þeim um 300 á milli áranna 2008 og 2009 á sama tíma og atvinnulausum fjölgaði um 10.000. Um þessar staðreyndir er ekki deilt.

Nú nýlega gaf formaður BSRB frá sér yfirlýsingu um orsakir þessarar þróunar og kallaði samhliða eftir skýrari svörum af hálfu Viðskiptaráðs um ástæður þess að slíkt ójafnvægi milli opinbera og almenna vinnumarkaðarins væri óheppilegt. Formaður BSRB telur að réttmætar forsendur séu fyrir fjölgun opinberra starfsmanna enda sé verkefnastaða opinberra starfsmanna betri en nokkru sinni áður. Að sama skapi gerir formaðurinn undirrituðum upp þá skoðun að „réttlát niðurstaða" í þessu máli feli í sér aukið atvinnuleysi í samfélaginu.

Viðskiptaráð hefur á undanförnum vikum haldið uppi virkri umræðu um stöðu ríkisfjármála. Í skýrslu sem kynnt var í desember síðastliðnum var farið ítarlega yfir þróun í fjármálum hins opinbera undanfarna áratugi, lögð fram málefnaleg gagnrýni á fyrirliggjandi skattabreytingar og rökstuddar tillögur til úrbóta í ríkisfjármálum. Enn fremur er ástæða til að undirstrika þá staðreynd að í tillögum Viðskiptaráðs er lögð rík áhersla á að staðinn verði vörður um velferðarmál. Það vekur því nokkra furðu að óskað sé eftir nákvæmari útlistingu á skoðunum Viðskiptaráðs í þessum efnum, því fáir hafa talað skýrar. Það mætti aftur á móti varpa þeirri spurningu til forsvarsmanna stéttarfélaga opinberra starfsmanna hvernig þeir hafi hugsað sér að brúa 200 milljarða fjárlagahalla. Vandinn er ótvíræður og hverfur ekki þó um hann sé ekki rætt.

Að sama skapi er ljóst að fullyrðingar um að hlutfallsleg fækkun opinberra starfsmanna leiði til aukins atvinnuleysis standast ekki nánari skoðun. Ef hægt væri að leiðrétta atvinnuleysi með fjölgun opinberra starfsmanna mætti spyrja af hverju þeim 15.000 einstaklingum sem nú eru án atvinnu er ekki boðið starf á vegum hins opinbera. Það er varla svo að um sé að ræða verri starfsmenn en starfa hjá hinu opinbera og líkt og formaður BSRB gerði grein fyrir ætti ekki að reynast vandasamt að verða þeim út um verkefni.

Svarið er einfalt. Ef 15.000 manns væru ráðnir inn á meðalkjörum opinberra starfsmanna myndi árlegur launakostnaður ríkisins hækka um tæplega 100 milljarða króna. Þessa upphæð má hæglega tvöfalda ef bætt er við lífeyrisréttindum, húsnæði og öðrum rekstrarkostnaði sem störfunum fylgja. Með þessari einföldu lausn gegn atvinnuleysi stæðu stjórnvöld í þeim sporum að afla þyrfti 200 milljarða í viðbótartekjur. Það er óhugsandi að hægt væri að leggja á slíka skatta á heimili og fyrirtæki án þess að afleiðingin yrði fjöldauppsagnir, gjaldþrot fyrirtækja, kaupmáttarrýrnun og gríðarleg aukning á svartri atvinnustarfsemi. Í kjölfarið myndi fylgja meira atvinnuleysi og enn hærra hlutfall opinberra starfsmanna. Viðskiptaráð er því þvert á móti að reyna að verja störf með því að benda á það hættulega ójafnvægi sem myndast hefur á undanförnum árum. Verðmætasköpun einkageirans er grundvöllur þess að hægt sé að tryggja opinber störf til frambúðar og viðhalda því öfluga velferðarkerfi sem við búum við í dag.

Formaður BSRB benti á í pistli sínum að umræða um atvinnumál sé viðkvæm í eðli sínu og krefjist yfirvegunar. Hvort tveggja er rétt, en hún krefst ekki síður raunsæis. Óraunhæfar væntingar um eðli hagkerfa eru því skammgóður vermir í baráttunni sem fram undan er í fjármálum hins opinbera. Fækkun starfa er alvarleg, hvort sem um er að ræða opinbera starfsmenn eða aðra. Viðskiptaráð hefur lagt fram tillögur sem miða að því að lágmarka röskun hagkerfisins vegna aðlögunar í ríkisfjármálum, stuðla að sköpun nýrra starfa, viðhalda almennri velferð og tryggja langtímasjálfbærni í ríkisfjármálum. Skýrari verður málflutningurinn varla.

Frosti Ólafsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands. Grein birtist í Fréttablaðinu 25. febrúar 2010.

Tengt efni

Ný nálgun forsenda sjálfbærrar hagræðingar

Það er mikilvægt fyrir efnahagslega framvindu komandi ára að jafnvægi náist fljótt í fjármálum hins opinbera. Tryggja þarf sjálfbært hlutfall á milli …
1. október 2013

Aðgerðir í þágu atvinnulífs

Nú þegar viljayfirlýsing stjórnvalda og IMF liggur fyrir er mikilvægt að stjórnvöld marki skýra sýn til framtíðar. Samkvæmt yfirlýsingunni liggur …
21. nóvember 2008

Hagvöxtur eða hugmyndafræðilegir sigrar?

Allt frá hruni bankakerfisins hefur legið fyrir að mikil uppstokkun væri framundan í ríkisfjármálum. Til að brúa þá gjá sem myndast hefur í rekstri …
11. mars 2010

Um forgangsröðun og heildarhagsmuni

Endurskipulagning íslensks hagkerfis er á krossgötum. Taka þarf margar erfiðar og sársaukafullar ákvarðanir í fjárlögum til að rétta af fjárhag …
3. desember 2010

Hagkvæmni ofar hagsmunum flokka - Samstaða um tæknilegar skattabreytingar

Þau verkefni sem núverandi ríkisstjórn stendur frammi fyrir eru ekki öfundsverð. Mikill niðurskurður blasir við og ljóst er að teknar hafa verið …
2. nóvember 2010

Hagkvæmni ofar hagsmunum flokka - Samstaða um tæknilegar skattabreytingar

Þau verkefni sem núverandi ríkisstjórn stendur frammi fyrir eru ekki öfundsverð. Mikill niðurskurður blasir við og ljóst er að teknar hafa verið …
2. nóvember 2010