Viðskiptaráð Íslands

Uppfærð skýrsla á ensku um stöðu mála

Nýverið uppfærði Viðskiptaráð skýrslu sína á ensku um stöðu efnahagsmála á Íslandi, The Icelandic Economic Situation: Status report. Skýrslan, sem kom fyrst út í október 2008, er hugsuð til upplýsingamiðlunar og jafnframt til að kynna stöðu mála hér á landi fyrir erlendum samstarfs- og hagsmunaaðilum.

Í skýrslunni má finna samantekt um þróun efnahags- og stjórnmála hérlendis frá hruni bankanna. Nú hefur hún verið uppfærð með áherslu á þróun Icesave-málsins, stöðu Íslands gagnvart AGS, stöðu peningamála hér á landi ásamt stöðu aðildarumsóknar Íslands að ESB. Skýrslan inniheldur m.a. tímaás þar sem farið er yfir helstu atburði sem snerta efnahagsmál landsins í tímaröð frá september 2008 til loka apríl.

Nú geta félagar nálgast uppfærða útgáfu af skýrslunni ásamt glærum á pdf formi sem nýta má til að kynna efni skýrslunnar í stuttu máli. Skýrsluna og meðfylgjandi glærur má nálgast með því að hafa samband við skrifstofur ráðsins í síma 510-7100 eða sent tölvupóst á vi@vi.is.

Tengt efni

Icelandic Economy 2023

Viðskiptaráð hefur ársfjórðungslega gefið út skýrsluna The Icelandic Economy, skýrsurnar eru á ensku og fjallar um íslenskt efnahagslíf í víðu samhengi.
31. desember 2023

The Icelandic Economy – 4F 2023

Viðskiptaráð Íslands hefur birt nýja ársfjórðungslega útgáfu af The Icelandic Economy. Skýrslan er á ensku og fjallar um íslenskt efnahagslíf í víðu …
2. nóvember 2023

Uppfærð skýrsla á ensku um stöðu mála

Nú hefur skýrsla Viðskiptaráðs um stöðu efnahagsmála á Íslandi, The Iceland Economic Situation: Status report, verið uppfærð. Skýrslan sem kom fyrst …
25. janúar 2010

Uppfærð skýrsla á ensku um stöðu mála

Í dag kom út uppfærð útgáfa af skýrslu Viðskiptaráðs um stöðu efnahagsmála á Íslandi, The Icelandic Economic Situation - Status report. Skýrslan, sem …
20. ágúst 2010

Nýjar glærur um stöðu efnahagsmála á Íslandi

Viðskiptaráð hefur staðið fyrir útgáfu skýrslu á ensku um stöðu og þróun efnahags- og stjórnmála hérlendis frá haustinu 2008. Miklar breytingar hafa …
27. júní 2011

Nýjar glærur um stöðu efnahagsmála á Íslandi

Viðskiptaráð hefur staðið fyrir útgáfu skýrslu á ensku um stöðu og þróun efnahags- og stjórnmála hérlendis frá haustinu 2008. Miklar breytingar hafa …
27. júní 2011