Viðskiptaráð Íslands

Námsstyrkir Viðskiptaráðs: umsóknarfrestur til 27. janúar

Viðskiptaráð tekur virkan þátt í uppbyggingu menntunar og er bakhjarl bæði Verzlunarskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík. Ráðið hefur jafnframt um árabil veitt styrki til framhaldsnáms erlendis og hafa námsstyrkir Viðskiptaráðs 2012 nú verið auglýstir til umsóknar. Líkt og undanfarin ár verða veittir fjórir styrkir og fer afhending þeirra fram á Viðskiptaþingi, sem haldið verður miðvikudaginn 15. febrúar 2012 næstkomandi.

Hverjir geta fengið styrk?
Tveir styrkir eru veittir til framhaldsnáms við erlenda háskóla eða aðra sambærilega skóla í greinum sem tengjast atvinnulífinu og stuðla að framþróun þess. Þá eru veittir tveir styrkir úr námssjóði um upplýsingatækni, sem eingöngu eru veittir umsækjendum í upplýsingatækninámi erlendis á framhaldsstigi. Hver styrkur er að upphæð kr. 400.000.

Hvert á að skila umsóknum?
Umsóknum skal skilað til Viðskiptaráðs Íslands, Kringlunni 7, 103 Reykjavík eða með tölvupósti á thordis@vi.is og skulu þær merktar „Námsstyrkur 2012“. Umsóknarfrestur fyrir námsstyrki Viðskiptaráðs 2012 er 27. janúar 2012, kl. 16:00. Allar nánari upplýsingar má nálgast hér.

Nánari upplýsingar um Viðskiptaráð sem bakhjarl menntunar:

Tengt efni

Námsstyrkir Viðskiptaráðs til framhaldsnáms erlendis

Viðskiptaráð tekur virkan þátt í uppbyggingu menntunar og er bakhjarl bæði Verzlunarskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík. Ráðið hefur jafnframt um …
12. desember 2011

14. desember 2012

Umsóknarfrestur fyrir námsstyrki VÍ rennur út 27. janúar

Umsóknarfrestur fyrir námsstyrki Viðskiptaráðs Íslands fyrir árið 2012 rennur út kl. 16 föstudaginn 27. janúar. Ráðið hefur um árabil veitt styrki til …
23. janúar 2012

Námsstyrkir VÍ til framhaldsnáms erlendis

Viðskiptaráð tekur virkan þátt í uppbyggingu menntunar og er bakhjarl bæði Verzlunarskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík í gegnum …
30. nóvember 2010

Námsstyrkir VÍ - Umsóknarfrestur rennur út á föstudag

Viðskiptaráð tekur virkan þátt í uppbyggingu menntunar og er bakhjarl bæði Verzlunarskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík í gegnum …