Viðskiptaráð Íslands

Námsstyrkir Viðskiptaráðs

Viðskiptaráð Íslands auglýsir eftir umsóknum um fjóra styrki til framhaldsnáms erlendis. Tveir styrkjanna eru veittir úr Námssjóði Viðskiptaráðs um upplýsingatækni en hinir tveir úr Námssjóði Viðskiptaráðs.

  1. Styrkirnir eru veittir til framhaldsnáms við erlenda háskóla eða aðra sambærilega skóla í greinum sem tengjast atvinnulífinu og stuðla að framþróun  þess.  Tveir styrkjanna gera kröfu um nám á svið upplýsingatækni.
  2. Skilyrði styrkveitinganna er að umsækjendur hafi lokið háskólanámi eða öðru sambærilegu námi.
  3. Hver styrkur er að fjáhæð kr. 350.000 og verða þeir afhentir á Viðskiptaþingi, 17. febrúar 2010.

Umsóknir þurfa að hafa borist skrifstofu Viðskiptaráðs, Kringlunni 7, 103 Reykjavík, fyrir kl. 16:00, föstudaginn 29. janúar 2010.

Umsóknum þarf að fylgja afrit af prófskírteini, vottorð um skólavist erlendis, ferilsskrá með ljósmynd af umsækjanda og stutt lýsing á markmiðum umsækjanda að námi loknu (hámark 1 bls.).

Nánari upplýsingar má finna hér.

Tengt efni

Björn og Andri í stjórn og háskólaráð HR

Fyrsti fundur nýrrar stjórnar Háskólans í Reykjavík fór fram föstudaginn 6. …
13. september 2024

Átján fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum hljóta viðurkenningu

Átján fyrirtæki hlutu viðurkenningu fyrir góða stjórnarhætti og um leið …
26. ágúst 2024

Sumaropnun og nýjar verðskrár

Opnunartími skrifstofu Viðskiptaráðs verður styttri frá 22. júlí til 5. ágúst, …
12. júlí 2024