Viðskiptaráð Íslands

Fjölmennur fundur um krónuna

Á annað hundrað manns sóttu morgunverðarfund Viðskiptaráðs á Grand hótel í morgun. Yfirskrift fundarins var: „Er krónan að laumast út bakdyramegin?“ Árni Oddur Þórðarson stjórnarformaður Marels og Þorvarður Tjörvi Ólafsson hagfræðingur í Seðlabankanum fluttu erindi, en fundarstjóri var Edda Rós Karlsdóttir forstöðumaður greiningadeildar Landsbankans. Arnór Sighvatsson aðalhagfræðingur Seðlabankans, Illugi Gunnarsson hagfræðingur og Ólafur Ísleifsson lektor við Háskólann í Reykjavík tóku þátt í pallborðsumræðum.

Erlendur Hjaltason, forstjóri Exista og formaður Viðskiptaráðs, setti fundinn og sagði að með þessum fundi væri verið að fylgja eftir skýrslunni „Krónan og atvinnulífið“ sem Viðskiptaráð gaf út í sumar. Hann sagði einnig að Viðskiptaráð myndi halda áfram að leiða umræðu um þessi mál, enda skiptu þau miklu máli fyrir rekstur fyrirtækja í landinu.

Í fyrirlestri sínum benti Árni Oddur á rekstrarvanda útrásarfyrirtækja sem myndast af völdum gengissveiflna. Einnig drap hann á mikilvægi þess að gera íslensk fyrirtæki að álitlegri kosti sem langtímafjárfestingu erlendra aðila, hvort heldur í formi hlutafjár eða lánsfjármagns, og þeim skorðum sem krónan setur því markmiði.
 
Að mati Þorvarðar Tjörva hefur útgáfa erlendra skuldabréfa í innlendri mynt fyrst og fremst stuðlað að aukinni dýpt íslenskra fjármálamarkaða. Engu að síður sé það ljóst að umrædd útgáfa vinni gegn því að stýrivaxtahækkanir Seðlabankans skili sér út í óverðtryggða vexti og knýi Seðlabankann til aukinnar meðvitundar um vægi alþjóðamarkaða við mótun peningastefnunnar.

Að mati Arnórs Sighvatssonar hefðu ákveðnir þættir mátt fara betur í stjórn peningamála síðustu misseri. Hagvöxtur og fjármunamyndun hafi verið umfram spár Seðlabankans og við því hefði mátt bregðast með auknum þunga í vaxtahækkunum. Bankanum hafi þó verið falið afar erfitt verk við stjórn peningamála þar sem samtímis var ráðist í stærstu framkvæmd íslandssögunnar, skattalækkanir og breytingar á fyrirkomulagi húsnæðislána. 

Illugi Gunnarsson taldi mikla þörf á að fylgja eftir umræðu um verðtryggingu lána og því bitleysi sem hún veldur miðlunarferli peningastefnunnar. Breytingar sem gera fyrirtækjum kleyft að framkvæma uppgjör í starfrækslumynt sinni hafi verið til marks um sókn og sveigjanleika og hægt sé að sækja enn lengra á því sviði. Hann lagði til að kannaðir yrðu kostir þess að gefa fyrirtækjum tækifæri á að greiða skatta í erlendri mynt.

Ólafur Ísleifsson sagði mikla þörf á kröftugri og málefnalegri umræðu um fyrirkomulag gengismála á Íslandi. Hann fór yfir helstu niðurstöður Krónunefndar Viðskiptaráðs, sem hann stýrði.

Skýrslan „Krónan og atvinnulífið“

Glærur Árna Odds

Glærur Þorvarðar Tjörva

Tengt efni

Verðbólgulækkun á Peningamálafundi Viðskiptaráðs

Viðskiptaráð stóð fyrir árlegum Peningamálafundi í Sjálfstæðissalnum á Parliament Hotel í gær, 27. nóvember. Frábær þátttaka var á viðburðinn í ár en …
28. nóvember 2025

Fjölmennur fundur um krónuna

Á annað hundrað manns sóttu morgunverðarfund Viðskiptaráðs á Grand hótel í morgun. Yfirskrift fundarins var: „Er krónan að laumast út bakdyramegin?“ …

Peningamálafundur Viðskiptaráðs 2023

Yfirskrift fundarins í ár er: Stenst hagstjórnin greiðslumat?
27. október 2023

Er krónan að laumast út bakdyramegin?

Viðskiptaráð stendur fyrir morgunverðarfundi undir yfirskriftinni „„Er krónan að laumast út bakdyramegin.“ Ræðumenn eru“ Árni Oddur Þórðarson, …
3. október 2006

Hagstjórnarvandinn - fjölmennur og líflegur fundur

Vel á annað hunrað manns mættu á morgunverðarfund Viðskiptaráðs á Hótel Sögu nú í morgun. Þar fór Davíð Oddsson, formaður bankastjórnar Seðlabanka …
7. nóvember 2006

Fjölsóttur morgunverðarfundur um peningamál

Mikil þátttaka var á árlegum fundi Viðskiptaráðs Íslands í tilefni útgáfu peningamála á Hilton Reykjavík Nordica nú í morgun. Fast að 400 gestir sóttu …